Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

hvað ætli vikan hafi farið í.....???

29. júlí 2010 klukkan 07:01
Síðasta helgi var notuð til afslöppunar, fórum á ströndina á laugardaginn og svo fylltist allt af gestum hér á sunnudaginn. Ný íslensk fjölskylda var semsagt að koma á svæðið og við buðum þeim í vöfflur og tilheyrandi. Þau höfðu komið til Danmerkur á laugardeginum og keyrðu beint hingað til Ås, höfðu verið búin að tryggja sér gistingu hjá vinum sínum í tvær nætur. Við Þórður Logi röltum svo með þeim á mánudeginum og fengum lyklana af nýju íbúðinni þeirra. Á þriðjudaginn fórum við í göngutúr um bæinn og fórum svo seinnipartinn niður á strönd þar sem við elduðum okkur kvöldmat ásamt Gunnu, Hönnu (sem er að vinna á svínabúi hér nálægt í sumar) og Benna, Höllu og börnum (nýju íslendingunum hér). Í gær fórum við til Svíþjóðar en allri íslendingar verða að kynnast verslunarferðum þangað, við fórum reyndar ekki til Nordby eða Svinesund heldur til Töcksfors. Benni og Halla fóru á sínum bíl og svo fyllti ég minn bíl af fólki en Lydia kom með og svo komu Pálína og Íris með lest í gærmorgun frá Osló og skelltu sér með.
Við höfum semsagt haft það fínt þessa viku, ég átti nú von á að hún yrði lengi að líða þar sem Haukur byrjaði að vinna á mánudaginn og við Þórður Logi ein á daginn.....en það hefur ræst úr þessu.
Ég er í góðum málum varðandi hreyfingu, skokk og ganga Winkgleði, gleði, gleði Laughing
Seinnipartinn í dag ætlum við til Son á Olsok-hátíð og seinnipartinn á morgun ætlum við að keyra til Grimstad þar sem við ætlum að vera um helgina hjá Bjarnarfjölskyldunni (Björn og Bríet).
góð vika greinilega, vonandi hefur þú það gott mín kæra, það er orðið of langt síðan við höfum spjallað
knús á ykkur
#1
29. júlí 2010 klukkan 15:28
ég get ekki kommentað á ísland eftir tvománuði svo ég geri það bara aftur hérna
vonandi náum við eitthvað að hittast á ferð þinni til íslands, það væri svo gott að hitta þig pínu pons.
en annars er ég á leið til noregs um miðjan sept, fundur líklega 16 og 17 sept í osló
heyrumst
#2
29. júlí 2010 klukkan 15:30

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.