Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Spekemat

27. júlí 2010 klukkan 07:23
Spekemat er samheiti yfir allskonar kjötmeti sem ýmist hefur verið saltað, reykt og þurrkað. Ég hef smakkað tvenns konar spekemat, fyrir utan salami.

"Fenalår" en það er lambalæri sem hefur verið saltað, þroskast eða hangið held ég að átt sé við (n.modnet) og þurrkað. Þetta getur maður keypt heilt á beini eða í bitum. Maður borðar Fenalår þannig að það er skorið niður í örþunnar sneiðar og notað sem snakk eða borðað með eggjahræru. Ég hef prófað hvorutveggja og þykir gott.
"Spekeskinke" er svínslæri sem hefur verið saltað og þurrkað. Það er eins með hana, hægt er að kaupa hana í heilu á beini eða í bitum. Hún er borin fram í þunnum sneiðum ásamt norskum flatkökum og sýrðum rjóma, þannig að spekeskinkan og flatbrauðið er eins konar snakk og sýrði rjóminn ídýfa.

Fleira sem flokkast undir spekemat er:
SALAMI, LETTSALAMI, KRYDDERSALAMI, FÅREPØLSE,VOSSAFÅR OG TIRILTUNGE, STABBUR, FJELLBIT, REINSDYRPØLSE, MORRPØLSE, PÆRESKINKE, WESTFALERSKINKE, SPEKEKJØTT, SKINKERULL, DYREKJØTT.

Spekemat er mjög vinsæll og selst alltaf mikið af honum á sumrin þar sem hann hentar vel í hverskonar ferðir og svo er hann ekki slæmur á heitum degi með svalandi drykk.
 
Takk fyrir þetta
Þegar ég gáði betur kom einfalda svarið í ljós:

Å speke betyr rett og slett å tørke

Þá vitum við það - sem sagt skerpukjötið færeyska er spekemat

Geymsluaðfer fyrir kjötmeti áður en frystitæknin kom til skjalanna

Njóttu þurrkaðrar kjötvöru
E
#1
27. júlí 2010 klukkan 11:18

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.