Sprungnir hælar
25. júlí 2010 klukkan 20:51
Ég á vanda til að safna ótrúlega miklu siggi á hæla og undir tábergi sem orsakar síðan ömurlegar sprungur sem eru ekkert skemmtilegar. Ráð við því er t.d. það sem ég gerði í gær.
Ég tók ca 2 msk maldonsalt og svipað magn af kókosolíu (allt í lagi að nota hvaða olíu sem er) hrærði þessu saman. Settist svo á gólfið með handklæði undir fótunum og byrjaði að nudda hæla, iljar og tær með þessu gumsi, horfði í mynd í sjónvarpinu á meðan með rauðvín á kantinum.

Dísa Gests
Sæl ljúfan. Ég og minn maður tókum okkur til í vor og breyttum mjög miklu í matarræði okkar. Að þeirri endurskoðun lokinni kom í ljós að mínir hælar byrjuðu að lagast og nú er ég laus við allt sigg og sprungur, tók tíma að gróa. Niðurstaðan var sú að með því að sleppa öllum gerfisætuefnum og E efnum þá lagaðist þetta. Dóttir mín hefur sömu reynslu og ég af þessu. Samt er mjög gott að sitja með glas í hliðarkantinum og nudda hælana meðan horft er á góða mynd. Bestu kveðjur til ykkar allra og hafið það sem allra best.
#1
26. júlí 2010 klukkan 12:22
hljómar vel, ég verð að prófa þetta, mínir eru hræðilegir.
Mamma og nokkrar kellur á Hauganesi fá sér kvöldrölt niður í fjöru, sandfjöru og labba þar um á tásunum og nudda hælana í sandinn, eftir nokkur skipti eru hælarnir eins og barnsrassar.
En við sem höfum ekki sandfjöruna í göngufæri notum saltið bara...

#2
27. júlí 2010 klukkan 18:11