Komin heim eftir gott ferđalag
22. júlí 2010 klukkan 16:43
Langt síðan síðast!!!
Mánaðargestatörn lauk í dag þegar mamma og pabbi flugu heim eftir 16 daga frí hér í Noregi. Gestatörnin byrjaði 22. júní þegar tengdamamma, Kolla og fjölskylda komu og voru í viku. Síðan kom Tedda vinkona og synir og þau voru í viku (þessar heimsóknir skörðuðust lítillega). Þá komu systkyni mín og fjölskyldur og voru í viku og mamma og pabbi komu með þeim og voru 9 dögum lengur. Síðan kom Jón á Hlíðarenda, æskuvinur Hauks fyrir viku og var í fimm daga.
Það má segja að við höfum farið ansi víða á þessum vikum, farið á ýmsa staði og má segja að austur Noregur sé orðin ágætlega dekkaður hjá okkur
Stefán Snær var samferða mömmu og pabba heim til Íslands í dag og verður þar í þrjár vikur. Við hin sem heima sitjum stefnum á að vera hér heima við í rólegheitum næstu daga - skreppum kannski á ströndina og dúllum okkur. Síðan er stefnt á skemmtiferð með skokkívafi upp í Sognsvann á sunnudaginn.
Jæja verð að rjúka, Gunna var að senda mér sms og við ætlum að fara út að hreyfa okkur
Set inn myndir frá fríinu fljótlega.
Góðar stundir