í fríi
29. júní 2010 klukkan 18:41
Kúrsinn (skólinn) kláraðist klukkan fjögur fimmtudaginn 24. júní - þannig að nú er ég komin í sumarfrí 
Tengdafjölskyldan var hér í viku, fóru í dag - við fórum með þeim á ströndina í Hvitstein, Tusenfryd, Osló og svo skruppu þau til Gautaborgar um helgina. Tedda vinkona og synir komu á laugardaginn var, fara á sunnudag næsta - við erum búin að fara með þeim á ströndina í Dröbak, Tusenfryd og til Ski. Á morgun á að kíkja til Osló og keyra svo til Elverum. Á fimmtudaginn verður förinni heitið upp í Femundsmarka en við ætlum að taka með okkur tjöld, nesti og nýja skó og sigla á kanó og finna okkur góða vík til að tjalda við og njóta náttúrunnar á þessum magnaða stað. Við verðum í för með Oddný og Ola sem þekkja svæðið vel. Semsagt ekkert nema gleði hér
Við Tedda erum búnar að fara í tvo göngutúra og eitthvað munum við ganga upp í Femundsmarka ef ég þekki okkur rétt. Í næstu viku byrja ég svo að fara eftir prógramminu góða
Góðar stundir

Hildur Dagbjørt
Þetta kallast sko að lifa lífinu, alltaf nóg að gera hjá ykkur ;) Kannski ég geti einhvað hitt á þig milli heimsókna/ferðalaga mánudag-miðvikudag. Gleðilegt sumar!
#2
30. júní 2010 klukkan 15:24
Fylgist svo spent með hvernig gengur með nýja prógramið