Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Línudans, lúđrasveit, heitar vöfflur, hoppukastali - nýtt albúm

13. júní 2010 klukkan 07:38
Ås mart´n var um helgina - byrjaði á fimmtudagskvöld og endaði í gærkvöld. Veðrið hefði reyndar mátt vera betra en hér var rigning og 15° hiti en það aftraði okkur ekki að taka þátt. Á seinnipartinn á föstudaginn röltuðum við á milli sölutjalda, horfðum á línudansgrúppu sína atriði, keyptum okkur heitar vöfflur af bekknum hans Stefáns og spáðum í hjól hjá hjólasölumanninum. Þegar heim kom var gerð pizza eins og vanalega á föstudögum og horft á HM í fótbolta um kvöldið (ég dormaði reyndar yfir því).
Á laugardaginn tókum við til í 45 fermetrunum okkar og eftir hádegið röltuðum við niður í bæ með fjóra lítra af vöffludeigi sem við skildum eftir í sölutjaldi 8-3 Cool Við keyptum okkur vöfflur, fórum á kaffihús í kakó, skoðuðum í búðir og sölutjöld og hlustuðum á lúðrasveitina. Þá bættust við góðir gestir frá Osló; Pálína, Íris dóttir hennar, Huginn 3 ára vinur þeirra og Ísak kom svo um kvöldmatarleytið. Þá hófst nú fjörið og krakkarnir fengu miða til að fara í "tívolítæki" þ.e. hoppukastala og hringekju - á leiðinni heim voru allir pollar hér í Ås þurrkaðir upp, kíkt á rólur og ýmis leiktæki.
Við enduðum svo daginn á grillveislu hér heima með Oslóargestunum okkar.

Til gamans þá set ég hér inn uppskrift af 2 lítrum af vöffludegi en hver nemandi í 8-3 skaffaði 4 lítra af deigi í vöfflusöluna. Það er snilldar fjáröflun að mínu mati, vafflan var seld á 10 NOK og glas af safti eða kaffi á 5 NOK. Tvö tvöföld vöfflujárn, plastglös, servéttur, sultur, mjólk, kaffi á brúsum, saft á flöskum og fullt af deigi í gosflöskum er allt sem þarf Laughing

Vöffludeig 2 lítrar
4 egg
1,5 dl sykur
1 líter hveiti
1,5 tsk lyftiduft
1,5 tsk vanillusykur
1,5 tsk kardimommur
1 líter mjólk
150 gr brætt smjör

Deigið er svo sett á plastflöskur eða í mjólkurfernur svo þægilegt sé að flytja það og hella í vöfflujárnið Cool



Ég legg af stað fyrir sex í fyrramálið til Åstjern sem er í u.þ.b. 120 km fjarlægð en ég verð þar alla vikuna í kúrs....og síðasta vikan í kúrsinum er hér í Ås 21.-25. júní.
Við erum að gæla við að skreppa til Grimstad (sem er á Sørlandinu) um næstu helgi í heimsókn til Björns og Bríetar í sumarhúsið þeirra. Á þriðjudaginn eftir rúma viku (þann 22.) koma svo gestir frá Íslandi; tengdamamma, Kolla, Hemmi og börn. Tedda og synir mæta svo á svæðið þann 26. júní. Það er semsagt nóg um að vera hér og sjáum við fram á að ferðast mikið næsta mánuðinn - vona að veðrið verði þokkalegt en hér er spáð köldu sumri, spurning hvort okkur finnist það ekki alveg frábært samt Cool


Dagurinn er lítið planaður í annað en afslöppun, hreyfingu og samveru - núna eru Haukur og Þórður í hjólaviðgerðum en merkilegt alveg - slöngunni úr afturdekkinu á hjóli hans Stefáns var stolið!! Skrítið að stússast við að losa dekkið til að ná slöngu!!!!

HÉR ERU NÝJAR MYNDIR - NÝJASTA ALBÚMIÐ HEITIR 12. JÚNÍ 2010.

Góðar stundir allir!!
 
Sú ráđagóđa
hæ, frábærar myndir. Gaman að sjá kvað þeim kemur vel saman. Íris er ekki orðin neitt smá stór, þessi litla trítla sem var hjá okkur í leikskólanum.
Þegar ég sá þau á einni myndinni leiðast yfir götu þá datt mér í hug kvæðið um litlu hjónin.
Kveðja mamma
#1
13. júní 2010 klukkan 19:34
Bara stemmingshelgi...gangi þér vel í kúrsnum alla vikuna.
#2
14. júní 2010 klukkan 12:20

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.