Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Foreldrafundur

09. júní 2010 klukkan 05:28
Í gær hittust foreldrar krakkanna í 8-3 til að spjalla um arbeidsmiljö-ið í bekknum og skólaferðalagið sem á að fara í haustið 2011. Í stuttu máli sagt þá er andinn í bekknum góður og kennararnir ánægðir með bekkinn - en auðvitað voru þarna foreldrar sem vildu nú ekki trúa því og spurðu í þaula hvort það væri ekki örugglega eitthvað vandamál sem þyrfti að velta sér upp úr.....en nei, það var ekki. Kennarinn hafði tekið hvern og einn nemanda í viðtal og spjallað um hitt og þetta og spurði sömu spurninganna um vinnufrið, andrúmsloftið í bekknum og svo framvegis - og það eru allri sáttir. Auk þess hefur félagsfræðingur fylgst með bekknum af og til í vor og tók hún undir þetta. Þannig að við foreldrarnir erum hæst ánægð.
Síðan var rætt um ferðina haustið 2011 - við verðum væntanlega flutt heim þegar þessi ferð verður farin en ætlum að taka þátt í að safna, það er búið að skipuleggja þrjú kökulodd á haustönn, flöskusöfnun, bílaþvott og svo framvegis en fyrsta fjáröflunin verður bekkjarkvöld í næstu viku þar sem fjölskyldum er boðið að koma. Krakkarnir ætla að rukka inn og bjóða upp á ýmis skemmtiatriði og svo verður lodd.
Ástæða þess að þetta er allt skipulagt svona snemma er sú að skólar í Noregi eru ókeypis, fólk á ekki að þurfa að borga fyrir hluti eins og skólaferðir - það eru bara lög í landinu sem segja þetta - auk þess eiga allir að vera jafnir og eiga jöfn tækifæri. Því er betra að hefja söfnun og skipulagningu snemma til að eiga næga peninga. Ef söfnunin gengur vel þá er möguleiki á að hægt verði að fara í dagsferð næsta vetur líka en það kemur allt í ljós um áramót þegar við sjáum hvernig söfnunin gengur.
Laughing
 
Anna Lóa
Leitt að hann missir af ferðalaginu. en gangi ykkur vel í fjáröfluninni :)
#1
10. júní 2010 klukkan 11:10

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.