Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

morgunblogg

06. júní 2010 klukkan 05:08
Ég er búin með eina viku í júníblokkinni en hún hófst mánudaginn 31. maí. Ansi vinnufrek en ég hef verið að mæta kl 8:15 og verið að fram á kvöld, oftast til ca 19 og stundum lengur. Við höfum byrjað inni og fengið útdeilt verkefnum, svo förum við út að mæla og endum svo inni í tölvum að reikna. Þetta hefur orðið til þess að ég hef ekki gefið mér tíma fyrir hreyfingu á kvöldin enda er ég mikið úti í skógi í gagnaöflun eða náttúruskoðun og fæ þá nokkra hreyfingu. Markmiðið er þá að bæta mér "hreyfingarleysið" upp um helgar.
Í gær fórum við til Hvitsten á ströndina þar, hún er ósköp notaleg - sandur, gras, steinar, bryggja, kiosk, wc, vöfflusala í gömlu bryggjuhúsi og notalegt, afslappað andrúmsloft. Á heimleiðinni kíktum rúntuðum við á nokkrar strendur í nágrenninu svona til að taka þetta allt út SmileEftir strandferðina skelltum ég mér í u.þ.b. 8 km göngutúr með Gunnu og Hildi.
Við stefnum svo á hjólatúr núna fyrir hádegið til Vinterbro þar sem við ætlum að kíkja á Breivoll ströndina (held þetta séu um 8-10 km hvor leið). Við verðum að vera búin að taka út slatta af ströndum áður en sumargestirnir koma Laughing

Stefán Snær fór á miðvikudagskvöldið í helgarheimsókn til pabba síns og fjölskyldu í Danmörku, kemur heim seinnipartinn í dag. Hann fór með pabba sínum á fimmtudaginn á Skive-festivalið en þar spiluðu fimm hljomsveitir og rúsínan í pylsuendanum var Rammstein. Þetta var víst ótrúleg upplifun og bara gleði - gaman að fá að heyra þetta í smáatriðum þegar drengurinn kemur heim Wink

Læt þetta morgunblogg duga að sinni, læt heyra í mér fljótlega Cool
vá það er aldeilis törn, en gott að þetta er ekki eingöngu innilokun í skólastofu. frábært að geta skellt sér niur á strönd...ég hlakka til næsta sumars :o)
#1
06. júní 2010 klukkan 09:41

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.