Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Skemmtileg upplifun

31. maí 2010 klukkan 18:58
Eins og ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum þá upplifði ég eitthvað í síðustu viku sem ég bjóst eiginlega ekki við að eiga eftir að prófa. Ég horfði ekki á undankeppnina í eurovision í sjónvarpinu, nei ekki aldeilis - ég fór!!
Ég tók frumburðinn með og svo kom Ása Dóra vinkona mín með sem var akkúrat í heimsókn i síðustu viku.
Fjórir aðrir Åsverjar (íslendingar búsettir í Ås) voru samferða okkur þremenningunum. Við tókum lestina til Osló og fengum okkur að borða á veitingastað í miðbænum. Þaðan tókum við "Eurovision" strætó til Bærum þar sem keppnin var haldin.
Strætóinn var troðfullur af allskonar fólki allsstaðar frá, þvílík gleði einkenndi mannskapinn og tilhlökkun.
Ákaflega vel til hafður norskur eurovision aðdáandi spurði okkur frétta af Ágústu (Silvíu Nótt) og Páli Óskari og söng lagið hennar Silvíu svo dæmi sé tekið um umræðurnar og stemminguna Cool
Þegar við komum að Telenor höllinni fór heldur betur um mann, allir í svo miklu stuði og tilhlökkunin mikil. Við fórum í gegn um öryggishlið, allur vökvi var tekinn af manni, kíkt í veski og svo var leitað á manni. Þegar allt það var afstaðið komum við á opið svæði (ég er sko enn utan við höllina) þar sem þvílíkur fjöldi fólks var kominn saman, sölutjöld með minjagripum og drykkjum, söngur, hvatningarhróp, fánaveif og gleði Laughing Til okkar kom m.a. maður sem spurði hvort við ættum aukafána en hann er hollendingur sem býr í Vín og elskar Ísland, við vorum allt kvöldið að rekast á hann og spjölluðum við hann í strætónum á leiðinni heim - hann og Ása Dóra eru nú fésbókarvinir Wink....en þetta var smá útúrdúr.
Við fórum svo inn í höllina en vorum látin fá betri sæti, nær sviðinu því það var langt í frá að vera uppselt á þennan viðburð. Las einhversstaðar að það hefðu verið 8500 manns í höllinni +/- 500 og því 9000 laus sæti +/- 500 (....sló mig eftir á að þeir skildu ekki hafa haft kontrol á því hve fjöldinn var mikill).
Uppúr klukkan átta hófst svona undirbúningsprógram til að byggja upp stemmingu, nokkrar sönggrúppur komu fram, útsendingarstjórinn fór yfir nokkra punkta um hvað væri leyfilegt og hvað ekki og svo framvegis, mikið glens og mikið gaman - alveg heljarinnar stuð. Á slaginu níu hófst síðan útsendinginn. Vá hvað það var geggjað!!!! Stemmingin í höllinni geðveik og lögin öll frábær. Grikkinn ætlaði allt að trylla og þegar Hera steyg á svið þá varð allt vitlaust - hún átti sko salinn - þau semsagt; grikkinn og Hera voru klapp og stemmings sigurvegarar kvöldsins.
Þegar úrslitin voru gerð kunn og áður en síðasta umslagið var opnað þá hljómaði í slanum HERA, HERA, HERA!!! Magnað alveg. OG mikið varð okkur létt þegar í ljós kom að Ísland fór áfram. Stemmingin í strætónum á leiðinni heim var ekki síðri, Hellas, Hellas, Hera, Hera og svo framvegis var hrópað.
Stemmingin og andrúmsloftið var einstakt, allir vinir, ein heild, engin landamæri, sameiginlegt áhugamál, gleði, gleði, gleði - já það er sko Eurovision!!!!!
Sannarlega frábært og get ég með sanni sagt að Hera gerði allt vitlaust þetta kvöld og ég hef heyrt frá vinkonu minni sem fór á úrslitakvöldið að Hera hafi átt salinn þá ekki síður en á undanúrslitakvöldinu. Það voru því viss vonbrigði að hún lenti í 19. sæti en jæja - mér fannst lögin reyndar mjög góð í ár og engan vegin hægt að spá fyrir um úrslitin - þó ég hafi nú lengi vel talið að við myndum taka þetta, svona uppá stemminguna Laughing
Við íslendingar erum jú langflottust Smile
.....og ég á eftir að prófa þetta aftur og þá vil ég gera eins og hommarnir sem við hittum - taka allan pakkan Laughing
 
Ellý
Þetta hefur greinilega verið mikil upplifun!! Vá hvað ég öfunda þig;) Nú er bara spurningin að spara aðeins og skella sér til Þýskalands eftir ár! ;);)
#1
31. maí 2010 klukkan 19:29
Geggjað!!!! En gaman :)

Þú lifir á þessu lengi lengi lengi :)
#2
31. maí 2010 klukkan 20:12
 
Hann Tommi (myndin) er rétt kominn á Jósku heiðarnar aftur ... ALSÆLL eftir sína Júróviku
#3
31. maí 2010 klukkan 20:44
Frábært...þetta hefur aldeilis verið upplifun
#4
01. júní 2010 klukkan 10:53
Ánægð fyrir þína hönd. Þetta hefur verið heljarinnar skemmtiferð :) takk takk fyrir pistilinn :)
#5
01. júní 2010 klukkan 14:04

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.