Vorprófin búin
20. maí 2010 klukkan 06:31
Jæja þá er ég komin í kærkomið frí eða til 31. maí. Í gær var síðasta prófið, það var í fagi sem heitir "Scientific Methodology in Ecology and Management of Natural Resources" þetta er annað fagið sem ég hef verið í hér við þennan skóla sem er kennt á ensku og ótrúlegt en satt þá líður mér eins og í hálfgerðu fríi þegar ég er í þannig fögum. Átti ekki von á því en það er einhvernvegin þannig að ég hef mikið meiri orðaforða í ensku en norsku - gengur allavega eitthvað betur að skrifa hana en það verður nú seint sagt um mig að ég sé tungumálamanneskja því það er ég alls ekki!! En svo ég snúi mér aftur að prófinu þá var þetta ofsalega notalegt próf, mér leið rosalega vel. Þarna voru 60 krossaspurningar og við hverja og eina voru fimm valmöguleikar sem gátu allir til enginn verið réttur - ég var alveg að fíla þetta system, málið var að skilja og fatta en ekki að klóra sér í hausnum yfir því hvernig maður ætti að koma orðum að hlutunum eins og er lang oftast í skriflegum prófum. Annars er ég nú algjörlega á því að námsmat eigi að vera sem fjölbreyttast: Einstaklingsverkefni, hópaverkefni, stutt próf með skilgreiningarspurningum, krossapróf og síðast en ekki síst gagnapróf þar sem fólk á að leysa ákveðin vandamál og má hafa öll gögn með - því þannig er það í raunveruleikanum.
Draumanámsmatshlutfallið mitt væri einhvernvegin svona:
Einstaklilngsverkefni (ritgerð) 40%
Hópaverkefni (eitthvað vandamál skoðað og fundin lausn á því + kynning) 10%
Stutt skilgreiningapróf (mætti vera á miðri önn) 15%
Krossapróf (mætti vera á miðri önn) 5%
Gagnapróf 30%
Ég held þetta væri alveg að gera sig svona, skilgreiningaprófið og krossaprófið gætu verið á sama tíma og væri svona klukkutímapróf til samans, það hefði þá í för með sér að fólk þyrfti að vera búið að lesa yfir allt það efni sem búið að væri að fara yfir og eftir þetta próf gæti einbeitingin farið að mestu í verkefnavinnu. Já ég held að þetta mundi alveg vera að gera sig.
Önnur mál:
Ég fór og keypti mér járn, er byrjuð að taka það inn og ætla að vona að ég nái mér fljótlega á strik.
Í dag ætla ég að taka íbúðina í gegn, gera allt fínt hér en húsverk hafa mætt afgangi síðustu vikur/mánuði.
Við fáum gest á laugardag en þá kemur hún Ása Dóra í heimsókn, hún ætlar að dvelja hér í rúma viku og er ætlunin að þvælast um nærumhverfið hér, kíkja til Osló, Dröbak, fara í gönguferðir, skokka, kíkja á ströndina og lifa og njóta. Þórður Logi talar um að fara í Tusenfryd með konuna en það er svo ágætt að við keyptum ársmiða fyrir fjölskylduna sem verður til þess að maður er ekkert að spara ferðirnar í tívolíið enda er það í 10 mín fjarlægð frá okkur
Mánudaginn 31. maí hefst svo 4 vikna júníblokk - 10 eininga kúrs sem mér sýnist að verði ansi strangur, tímaplanið gerir allavega ráð fyrir að flesta daga verðum við frá 8:15 til 21:30 með ca 45 mín hádegispásu og ca 2 1/2 tíma middagpásu. Ég geri semsagt ekki ráð fyrir að vera til stórræðana hér heima fyrir og því eins gott að ég nýti tímann í þessu fríi mínu til að lifa, njóta og slappa af
Í gær var ótrúlegur hiti, þegar ég var búin í prófinu um kl 16 fór ég beina leið heim í stuttbuxur og hlýrabol og sólaði mig. Við gerðum kjúklingasalatið sem ég póstaði hér inn í síðustu færslu og það sló í gegn hjá feðgunum. Um áttaleytið í gærkvöld kom skýfall og þvílík gleði sem braust út hjá börnunum, það var ekki þurr þráður á Þórði Loga þegar hann kom inn og var hann settur beina leið í sturtu og upp í rúm eftir að hafa ólmast úti.
Við Bríet tókum daginn í dag snemma, vorum komnar út að skokka kl 6:15 í morgun í 16°hita og sólarlausu. Svona ca 10 mín eftir að við komum inn fór að rigna og það hellirignir, þvílíkt gróðraveður.
Jæja best að hætta þessu stauti og smella sér í gúmmíhanskana og byrja, eigið góðan dag

http://www.barbietec.com
barbietec
Til hamingju með að vera búin og ég bið að heilsa Ásu Dóru :)
#1
20. maí 2010 klukkan 08:33
Sú ráðagóða
Til hamingju með prófalok, en þetta verður greinilega strembið í júní. Þá er para að segja eins afi þinn "púff-púff-púff" og svo er þetta bara allt í einu búið.
Kveðja mamma
Kveðja mamma
#2
20. maí 2010 klukkan 17:52
Til hamingju með próflokin...og vá ekkert smá flott að hlaupa í hita eldsnemma á morgnana :o) Njóttu frísins framundan !!
#3
21. maí 2010 klukkan 19:26