þriðjudagur til......þrrrGleði!
Á morgun klukkan 14:00 fer ég í síðasta prófið á þessari vorönn, morguninn verður kannski eitthvað nýttur í lestur síðan stefni ég á göngutúr og innkaup.
Eftir próf mun ég arka heim og undirbúa sumarlegt salat í kvöldmatinn - einfalt og fljótlegt því ég mun vilja nýta mér góða veðrið sem er í kortunum þegar heim verður komið

Uppskriftin af salatinu sem ég ætla að gera annaðkvöld er fengin af vefnum Cafe Sigrún og læt ég hana fljóta hér með:
Kryddað kjúklinga- og vínberjasalat
Fyrir 2-3
* 500 gr grilluð (helst) eða steikt kjúklingabringa, rifin í strimla. Skinnið ekki notað. Notið "hamingjusaman kjúkling" (þ.e. free range og organic)
* 2 sprotar sellerí, sneiddir fínt
* 250 gr steinlaus, blá vínber, skorin í helminga (má nota græn líka)
* 60 gr möndluflögur, þurrristaðar á pönnu þangað til aðeins farnar að brúnast (5-10 mín)
Karrísósa
* 50 gr majones eða sýrður rjómi frá Mjólku (5%, án gelatíns). Hægt er að kaupa létt majones (6% fita) en það inniheldur sykur og viðbætt efni og getur innihaldið glútein.
* 175 gr sýrður rjómi frá Mjólku, (5% fita, án gelatíns). Einnig má nota jógúrt
* 1 msk agavesíróp
* 2 tsk karríduft
* 1/4 tsk paprikuduft
* 1/4 tsk chilliduft
* 1/4 tsk svartur pipar
Aðferð:
* Rífið kjúklinginn í strimla og setjið í skál ásamt celleríinu.
* Skerið vínberin og setjið í skálina ásamt möndluflögunum
* Til að búa til karrísósuna, blandið majonesinu, sýrða rjómanum, agavesíropinu, karríinu, chilliduftinu, paprikuduftinu og piparnum saman.
* Hellið karrísósunni yfir kjúklinginn og blandið vel saman.
* Berið salatið fram á diskum eða í skálinni (og hver og einn skammtar sér).
* Það er gott að bera fram salat með icebergi, kirsuberjatómötum og þurrristuðum graskersfræjum (enska: pumpkin seed).
* Blandið saman og setjið í sér skál.
* Einnig er gott að bera fram gróft snittubrauð með réttinum eða glúteinlaust brauð fyrir þá sem hafa glúteinóþol.
ég ætla að stela þessari uppskrift líka
kv
Nú stefnir i að ég hlaupi með þér í Oslóarmaraþoninu...vííí við erum að flytja til Osló í ágúst. Manninum mínum var boðið starf hjá Statens vegvesen og við ætlum að skella okkur í smá ævintýri...svo erum við bæði mjög hrifin af Noregi, svo það var ekki hægt að sleppa þessu tækifæri.