Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Rakst á vegg á föstudag

16. maí 2010 klukkan 09:20
Lenti í ótrúlegu atviki á föstudaginn. Þannig var að ég var hér heima allan daginn, lærði eitthvað smá en var annars að dúllast með strákunum. Við fórum til Dröbak og keyptum blóm í svalakassana og gerðum svalirnar huggulegar. Ég borðaði allt of lítið þennan dag.
Seinnipartinn fórum við Bríet svo Årungen-hringinn sem er rúmlega 12 km hringur, ætlunin var að ganga til að bryja með en taka svo ca 4 km kafla þar sem við mydnum skokka 300 m og ganga 200 m. Áður en við fórum fékk ég Garminúrið hennar Bríetar því það er með púlsmæli (mitt er ekki með svoleiðis aukabúnaði). Það er skemmst frá því að segja að púlsinn var allt of hár hjá mér að mati hjúkkunnar og gengum við því meirihlutann. Þegar fór að síga á seinnihluta leiðarinnar fann ég að orkan var að verða búin, ég var með rúsínur í vasanum, ég drakk allt vatnið mitt og helminginn af vatni Bríetar. Ég hafði það þó heim, skellti mér í sturtu og svo fórum við í "konuferð" í Skistorsenter. Maturinn var ekki til heima áður en við fórum og ég borðaði því ekkert. Þegar við komum til Ski fórum við í Intersport, þar keypti ég mér proteinbar til að innbirða einhverja orku. Ég gúffaði því í mig. Því næst var kíkt í skóbúð, þar byrjaði ég að svitna og líða verulega illa - sat á meðan Bríet og Lydía skönnuðu búðina. Því næst var kíkt í Kappahl þar sem ég hafði verið búin að hugsa mér að finna eitthvað sumarlegt eins og t.d. kjól á mig og eitthvað sætt handa tveimur litlum vinkonum mínum á Íslandi sem ég hef verið á leiðinni að senda smá sumarglaðning....ég gekk um og gat varla haldið mér uppi - sá fullt en hafði ekki orku til að taka fötin og skoða þau almennilega. Því næst var kíkt í H&M en ég var búin að ákveða að kaupa mér hvítar leggings og hlýraboli.....rétti Bríeti leggnings og einn hlýrabol sem voru næst hendinni þegar inn var komið en fór út og settist á bekk. Lydía náði í vatn og stóð yfir mér því ég var að drepast!!! Síðan kom Bríet og náði í kók.....ég þambaði þarna semsagt háttí hálfan líter af vatni og næstum hálfan af kók áður en við lögðum af stað heim á leið. Ég hafði mig hingað upp, náhvít og ómöguleg, fékk mér banana og þá hresstist ég. Bríet kom og nuddaði mig og svo fór ég að sofa,klukkan ekki orðin tíu. Mér leið vel í gær - svolítið eftir mig líkamlega og hvíldi og passaði mig að borða....Cool
Í dag verður það sömuleiðis fæðan sem verður passað uppá spínat í öll mál og sennilegast hjólatúr - og auðvitað að lesa fyrir síðasta prófið sem er á miðvikudaginn. En vá ég hef aldrei lent í svona og þetta er bara ekki að passa, miðað við það form sem ég á að vera í - ég hljóp 5-7 km fyrir jól, var auðvitað þreytt og móð en kommon, þetta er nú einum of að vera svona búin á því eftir 12 km sem eru að mestu leyti á göngu. Ég er verulega svartsýn að ég nái að þjálfa mig upp í hálft maraþon ef þetta lagast ekki.....Laughing
úff ekki hljómar þetta vel, sennilega blóðleysið og of lítill matur sem hafa áhrif. Passaðu þig vinkona
#1
16. maí 2010 klukkan 09:47
 
Sólrún Halla
Mín kæra Sigga! Þú mátt ekki gleyma því að borða því þá hefur þú enga orku til þess að hreyfa sig, þarna sést hversu miklu máli góð/næg næring skiptir máli fyrir þjálfun. En nú skaltu fara varlega, borða nóg af járnbættum mat og næringarríkum. Og gangi þér vel í síðasta prófinu mín kæra!

Hafðu það sem allra best og þú nærð alveg markmiði þínu, hef fulla trú á þér!
kv. Solla
#2
16. maí 2010 klukkan 10:37
 
Maja
Úfff... maður verður víst að passa upp á matinn... að borða reglulega;) Gangi þér vel.
Ég fór mjög oft í Skistorsenter þegar ég bjó í Noregi '98, tók lestina frá Oppegård (þar sem ég bjó) og var ekki nema ca 10 mínútur þangað, fannst æðislegt að fara ein og dúlla mér;) Langar ótrúlega mikið að fara þangað aftur:)
#3
16. maí 2010 klukkan 11:12
 
Björk
Farðu vel með þig Sigga mín...strax í apótekið og kaupa járn.
#4
16. maí 2010 klukkan 11:21
 
Silla systir
Sammála fyrri ræðumönnum: borðaðu kona og farðu líka í apótekið!! Hef fulla trú á því að þú náir markmiðum þínum :)
#5
16. maí 2010 klukkan 11:53
 
Sú ráðagóða
Farðu til læknis og láttu taka blóðprufu
#6
16. maí 2010 klukkan 20:47
Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég las þessa færslu var - "hmmm ok, í lokinn kemur að Sigga hefur verið búin að taka þungunarpróf og það var jákvætt", en ég sá hvergi þessa setningu í blogginu... Mundu að fara vel með þig Sigga....
#7
16. maí 2010 klukkan 21:52
 
ég og hin ráðagóða erum sammála (við erum svo úrræðagóðar)- farðu í blóðprufu, áður en þú gerir eitthvað af sjálfsdáðum í málinu ;)
e
#8
16. maí 2010 klukkan 22:10
 
Litla systir
ÓFRÍSK ?!

Farðu vel með þig Sigga mín, óléttar konur eiga ekki að vera hlaupa eða ganga svona vegalengdir og þær verða líka að muna að borða ;0)

Knús og koss
#9
16. maí 2010 klukkan 22:20
Ég er ekki ólétt!!!!....og þó svo væri þá er ekkert hættulegt að hreyfa sig!!!!!
#10
17. maí 2010 klukkan 05:10
 
Litla systir
he he náði ég að æsa þig aðeins? vona það ;0)

Knús og koss
#11
17. maí 2010 klukkan 10:20
 
Sissa
Sæl frænka.
Ja hérna hér, þú verður nú að passa þig á því að borða. Ég er nú samt sammála þessum ráðagóðu, drífðu þig til læknis í blóðprufu og fáðu álit á þessu áður en þú ferð að gera eitthvað annað, það marg borgar sig! ;);););)
#12
17. maí 2010 klukkan 12:14

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.