Blóðleysi og æfingar
14. maí 2010 klukkan 06:23
Í haust hljóp ég 5 km og fór meira að segja léttilega 7 km. Síðan fyrir jól fór ég í pásu og byrjaði svo í ræktinni í febrúar og svo hafa göngur og hlaup verið að bætast inní jafnt og þétt. Það er hins vegar eitthvað sem er ekki í lagi. Ég er að lenda í því að mæðast mjög fljótt og púlsinn rýkur upp úr öllu, er reyndar ekki með púlsmæli en ég finn það bara.
Við Bríet höfum verið að pæla í þessu og höfum við rætt um að kannski sé þetta asminn að taka sig upp aftur en ég var með vægan asma og tók lyf hér áður fyrr en hætti því þegar ég gekk með Stefán Snæ fyrir 14 árum. Svo heldum við áfram að pæla og það er komin niðurstaða sem passar algjörlega, blóðleysi! Ég er alls ekki ókunnug því en gleymi mér alltaf, veit ég verð að passa mig
Alveg merkilegt en blóðleysi hefur gríðarlega mikil áhrif á allt daglegt líf og þetta er þannig kvilli að hann læðist aftan að manni og maður verður eiginlega vanur einkennunum.
Blóðleysi felur í sér skort á rauðum blóðkornum, þau ferðast um líkamann eftir æðunum, vinna súrefni úr lungunum og skila því til frumna líkamans. Frumurnar nota súrefnið til brennslu sem gefur okkur orku.
Ef rauðu blóðkornin eru of fá eða starfa ekki sem skyldi koma fram einkenni súrefnisskorts, þ.á.m. þreyta, slappleiki.
Nú er því málið að kaupa járn í næsta apóteki og muna eftir græna grænmetinu
Við gengum að mestu leyti 7 km í gær og svo er það 12 km hringurinn í dag
Það er frí í grunnskóla og leikskóla í dag, en ég er að fara út í skóla og ætla að lesa eitthvað fram eftir degi, Stefán ætlar að sjá um Þórð á meðan. Ég ætla svo að skreppa aðeins í búð og kaupa mér hlaupaskó sem eru á tilboði og svo vantar mig bráðnauðsynlega sumarboli 

http://jonalindk.bloggar.is
Jóna Lind
úffff ekki gott með blóðleysið...háma í sig grænt hehe. Hlaupaskór og sumarbolir eru algjört möst !! Semmtu þér vel í verslunarferðinni
#1
14. maí 2010 klukkan 08:51
heyrðu ég var svona um daginn og þá var það blóðleysi.. tók bara Duroferon sem svínvirka, en hér á ísl þarf að kaupa þær bak við borðið ekki upp í hillu í apótekjum.
Annars skil ég þetta með að dauðvanta sumarboli og föt.. Ég er í þessum pakka núna.. verst er að mig langar bara að kaupa íþróttaföt hehehe en þyrfti að endurnýja venjulegu fötin mín frekar :)

#2
14. maí 2010 klukkan 09:34
eþ
hvernig væri að fara í blóðtest og vera viss um að þetta sé járnskortur, helvítis asminn er nefnilega lúmskur (láttu mig vita það)
Mæli með mælinug
E
Mæli með mælinug
E
#3
14. maí 2010 klukkan 21:05
Sú ráðagóða
Sammála síðasta ræðumanni, fara til læknis. Ef við vitum alltaf sjálf hvað er að okkur hvers vegna eru þá læknarnir?
kveðja mamma
p.s. var að koma úr helgarreisu í R-vík, eyddi mökk af pening í föt á mig og pabba þinn. Fórum í leikhús og sáum Íslandsklukkuna í Þjóðl. og Dúfurnar í borg.

#4
16. maí 2010 klukkan 12:26