Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

á morgun og hinn

12. maí 2010 klukkan 20:39
Á fyrramálið ætlum við Bríet að hlaupa/ganga um 7 km.
Seinnipartinn á föstudaginn er það svo 12 km hringurinn (verðum að bæta upp fyrir kyrrsetu þessarar viku!!!).
Á morgun ætla ég að læra slatta fyrir næsta próf (sem verður þann 19. maí) en feðgarnir ætla að skella sér í Tusenfryd (tívolíið) á meðan en við ætlum að kaupa ársmiða á línuna Cool enda borgar það sig því við vitum að við munum fara þangað með gesti í sumar en ef maður fer oftar en tvisvar á ári þá borgar ársmiðinn sig.

Djöfull ætla ég að vona að mér hafi gengið þokkalega á prófinu í dag, þetta var þannig próf að ég hefði mikið frekar vilja taka það munnlega, eitthvað svo erfitt að skrifa markviss svör á öðru tungumáli en íslensku UndecidedEN þetta fer einhvernvegin, skál fyrir þvíWink
Gangi þér vel í prófunum vinkona...flott að taka smá hreyfingu með :o)
#1
13. maí 2010 klukkan 08:38
 
Bjarni mágur
Já gangi þér vel í þessum prófum. Já og okkur hlakkar til að koma og fara með ykkur í tívolíið.

Kveðjur frá okkur öllum, Bjarni
#2
14. maí 2010 klukkan 20:54
 
Bjarni mágur
Já og ekkert smá kraftur í ykkur í þessum hlaupum! Við verðum að fara að gera eitthvað ef við ætlum að eiga einhvern séns í að halda í við þig.
#3
14. maí 2010 klukkan 20:55

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.