Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

próf í dag

12. maí 2010 klukkan 06:46
Ég er búin að sitja yfir glósum að rifja upp skógvistfræði en ég er að fara í próf í því fagi eftir hádegi í dag. Þetta er mikið efni og breytt svið en ég hef nú sem betur fer haldið vel dampi í lestri í vetur og því er ég lítið stressuð fyrir þetta próf. Það er aðallega að maður klikki ekki á orðunum....en ég má nú sem betur fer hafa með mér orðabók þannig að ég ætti að lenda í teljandi vandræðum.
Það er búið að vera eins og var fyrir síðustu prófvertíð brjálað að gera hjá Hauk í vinnu og ég hef því fengið eins og svo oft áður nasaþefinn af því hvernig það er að vera einstæð móðir. Skil bara ekki hvernig sumar fara að.....!!
Ég er ekki búin að standa við stóru orðin í hreyfingunni síðustu daga, hef þó farið aðeins út í stutta göngutúra niðrí bæ, í búðina og svona en ekki eins og ég ætlaði. Svona er nú bara það en þetta er allt uppávið núna Cool
Mataræðið er í góðum gír....fyrir utan súkkulaði sem ég fékk mér í gær - en það er nú svo gott fyrir sálina Smile
Það er hálfgerður föstudagur í öllum í dag, enda ekki furða uppstigningadagur á morgun, frí í leik og grunnskóla á föstudag, þá kemur helgin og á mánudaginn er 17. maí þjóðhátíðardagur Noregs. Haukur og drengirnir stefna að því að skella sér í Tusenfryd á morgun og svo á að fara í hljóðfærabúð í Moss á laugardaginn þannig að ég sé allavega fram á tvo góða lestrardaga í fríinu. Vonandi verða þeir nú samt fleiri og það ætti að vera lítið mál ef Haukur verður heima - en ég fer í próf i aðferðarfræði þann 19. maí. Það próf er 60 spurninga krossapróf með fimm valmöguleikum hver og allt til/eða ekkert getur verið rétt og dregið niður fyrir ranga krossa Cool Jæja en ég ætla nú ekki að fara að stressa mig á því núna, ætla aðeins að kíkja á glósurnar mínar fyrir skógvistfræðina og svo að tæma hugann áður en ég held af stað út á Campus eftir hádegi í próf dagsins Laughing

Plan dagsins er svona:
Lesa fram að hádegi.
Próf eftir hádegi.
Hreyfing seinnipartinn.
Pizzugerð í kvöld.

p.s. Fékk nettan sumarfiðring í gær þegar rukkun frá íslendingafélaginu kom vegna leigu á sumarhúsinu í Norefjell en við verðum þar í viku í júlí.....ég hlakka svo til.... Cool
 
Margrét
Gangi þér vel í prófinu mín kæra :) Og auðvitað að lesa fyrir hitt prófið :)

Ég er í nokkurnveginn sömu sporum og þú, hálfpartinn einstæð móðir, en þetta tekur allt enda, sem betur fer og við endurheimtum kallana okkar aftur :)

Það er bara geggjað að vera í Norefjell :) Yndislegur staður, væri alveg til í að prófa að vera þar að sumri til. Vorum þarna í október, æðislegt að vera þarna þá...

Kv. Magga
#1
12. maí 2010 klukkan 06:59
 
Björk
Gangi þér sem best elsku Sigga, við tökum pizzuna með þér í kvöld...já og kannski bara röddarann líka:) Súkkulaði er ekki alslæmt.
#2
12. maí 2010 klukkan 09:11
gangi þér vel í prófunum þínum Sigga sæta
#3
12. maí 2010 klukkan 10:03
Gott gengi í prófi og lestri. Ég hef verið í Norefjell og það er æði :o)
#4
12. maí 2010 klukkan 14:27

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.