Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

að hugsa fyrst og framkvæma svo

10. maí 2010 klukkan 16:02
Stundum kemur yfir mig gjörsamlegt vonleysi....það eru oft ótrúlega einfaldir og saklausir hlutir sem valda þessari tilfinningu....og eftir einhvern tíma er ég farin að hlæja að þessu öllu saman. Eins og t.d. í dag er ég pirruð yfir ákveðnum hlut en ég á örugglega eftir að hlæja að þessu eftir viku. Málið er að á laugardaginn var s.k. DUGNAD hér á nemendagörðunum þar sem allir sem vettlingi gátu valdið lögðu sitt af mörkum í að gera nærumhverfið snyrtilegra, hér voru sameignir þrifnar, lóðin rökuð og allt gert voða fínt. Fólk sem er að flytja notaði tækifærið og henti út fullt af drasli sem átti að hendast. Þessu dóti var komið fyrir í og umhverfis sorptunnuskýli nemendagarðanna. Við hugsuðum...af hverju skyldi ekki bara verið komð með gám þannig að þetta drasl færi bara þá beint í þessa gáma....en jæja. Í gær voru börnin búin að dreifa úr þessu drasli út um allt, það var farið að fjúka úr þessu allskonar pappírar og drasl. Í dag mættu svo starfsmenn SiÅs sem rekur stúdentagarðana og það sem þeir gerðu var að klóra sér í hausnum og fara.....!!!
Stuttu seinna fengum við og sennilegast allir íbúar hér sms frá SiÅs bolig "Hei, takk for godt dugnadsarbeid! Håper alle kan bidra til at alt søppelet kommer oppi containeren som skal være på plass nå!" Djöfullinn sjálfur!!! Þetta er svo fatlað lið....!! Hér var fullt af fólki sem er á kafi í prófum og á lokaspretti í mastersritgerðarskrifum sem mætti og gerði hér heilmikið, rakaði, skúraði, skrúbbaði, smúlaði, klippti og hjó en vegna ótrúlegs skipulagsleysis að hálfu þeirra sem reka batteríið þá var sú vinna næstum fyrir bí og svo vilja þeir að við komum og eyðum meiri tíma í að hreinsa upp!!! Ég er svo pirruð yfir þessu grrrr, er ekki að meika þetta líf hérna á Skogveien!! Held að þetta fólk ætti að hugsa fyrst og framkvæma svo!
 
edda
hey bara fá sér rétt í tánna og þá verður þetta ekki að hrjá þig ;o)
#1
10. maí 2010 klukkan 16:54
 
Hrafnhildur
Já það er dálíð til í þessu Sigga. Eftir að hafa verið hér á Skogveien í meira en tvö ár þá get ég alveg staðfest það að það er ekki mikil hvatning í að reyna gera hreint og fínt hérna í DuGnAd!! Hef reynt að þróa svona blöðkur sem ég skít upp (svona eins og dráttarhesta augnblöðkur) þegar á þarf að halda. Kippi svo oft með mér drasli fyrir utan hjá mér á leið í ruslatunnna þegar ég fer út með ruslið ;+)

Annars bestu kveðjur hérna að handan!
Hittumst vonandi meira þegar lærdómskaflanum okkar verður lokið þetta vorið!!!!!

klem
Hrafnhildur.
#2
10. maí 2010 klukkan 19:50
ojoj þvílík vittleysa...
#3
10. maí 2010 klukkan 20:30
 
Margrét
Ohhhh...skil svo vel að þú sért pirruð yfir þessu!! Ég myndi vera það líka...

Maður gæti haldið að þetta væru allt upp til hópa bogamenn sem væru að skipuleggja þetta...framkvæma (tala) fyrst og hugsa svo ;)
#4
11. maí 2010 klukkan 11:34

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.