Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

skógarferð og þvottaslit

06. maí 2010 klukkan 05:40
Í dag er ég að fara í skógarferð með hópnum sem er með mér í skógarvistfræði. Við förum til Son sem er lítill bær sem tilheyrir Vestby-kommune. Ég mun taka myndavélina og fullt af nesti Cool
Ég komst að því þegar ég var að finna til útivistarfötin mín í morgun að það er allt að "hrynja" fötin mín eru meira og minna orðin svo slitin að það er agalegt, ef það eru ekki göt þá er grá slikja yfir þeim og þegar vel er að gáð þá er þetta hreint og klárt slit. Held að einn aðalsökudólgurinn sé þvottavélin á heimilinu, ég er sannfærð um að hún er að slíta fötunum óeðlilega mikið. Tromlan er frekar gróf að innan og ég því fullviss um að það sé skýringin.

Veðrið hérna er alltaf að koma mér á óvart, í fyrradag snjóaði, seinnipartinn í gær sat ég á svölunum mínum í hlýrabol og kvartbuxum.....sveiflur - já heldur betur!! Vona allavega að það verði þurrt í dag en samkvæmt veðurspánni eru bara tveggja stafa tölur í kortunum næstu viku, vona að það haldist Laughing
Ótrúlegt þetta veðurfar...það var +20 í Skaftafelli í vikunni og hjá mér er +12 í dag og ekkert fennigr á okkur :o)
#1
06. maí 2010 klukkan 08:52

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.