Vá frábært að hlaupa í kringum Sognsvann...þú massar 9 km :o)
Gott að þér gengur vel með matarpanið...fylgist með þér vinkona :o)
Sýð egg
04. maí 2010 klukkan 22:23
Ástæða þess að ég sit og skrifa bloggfærslu þetta seint um kvöld er sú að ég er að sjóða egg. Fattaði það nefnilega að það var meiningin að hafa eggjaþema í nestispökkum drengjanna á morgun og því varð ég að láta vaða og sjóða nokkur stykki.
Það getur nefnilega verið ansi leiðigjarnt að vera alltaf með samloku í nesti sem er alltaf eins.....
Ég var að sjá að það verður hlaupið Kvennahlaup ÍSÍ í Osló þann 20. júní. Þrjár vegalengdir í boði 3, 6 eða 9 km - bara gleði og það sem meira er að staðsetningin er æði. Það verður hlaupið í kring um Sognsvann en einn hringur er 3 km. Ég ætla - það er á hreinu, bolirnir eru appelsínugulir í ár - geggjað alveg hreint.
Ég tók enga hreyfingu í gær, varð að svíkja því við vorum bara ein heima ég og Þórður og ekki fór ég að skilja litla manninn eftir einan heima. Fór þess í stað samtals 7 km í dag gekk nú mestan partinn en þetta kemur með kalda vatninu. Finn fyrir beinhimnubólgu sem er ekki góð tilfinning....en hún lagast
Mataræðið er í góðum gír, vá hvað ég er hrikalega glöð með danska vin minn "þann danska"
Það eina sem ég hef ekki staðið við er að borða mínar tvær brauðsneiðar á dag enda finnst mér oft betra að skipta út brauði fyrir grjón/kartöflur/pasta/ eða ávöxt.
Jæja nú hugsa ég að eggin séu soðin - GÓÐA NÓTT!!
p.s. ég skrifa alltaf matardagbók á undirsíðuna "Trompmánuðurinn maí 2010", skrifa alltaf að morgni það sem ég ætla að borða og svo fer ég yfir það að kvöldi og lagfæri ef einhverjar breytingar hafa orðið....
Það getur nefnilega verið ansi leiðigjarnt að vera alltaf með samloku í nesti sem er alltaf eins.....
Ég var að sjá að það verður hlaupið Kvennahlaup ÍSÍ í Osló þann 20. júní. Þrjár vegalengdir í boði 3, 6 eða 9 km - bara gleði og það sem meira er að staðsetningin er æði. Það verður hlaupið í kring um Sognsvann en einn hringur er 3 km. Ég ætla - það er á hreinu, bolirnir eru appelsínugulir í ár - geggjað alveg hreint.
Ég tók enga hreyfingu í gær, varð að svíkja því við vorum bara ein heima ég og Þórður og ekki fór ég að skilja litla manninn eftir einan heima. Fór þess í stað samtals 7 km í dag gekk nú mestan partinn en þetta kemur með kalda vatninu. Finn fyrir beinhimnubólgu sem er ekki góð tilfinning....en hún lagast

Mataræðið er í góðum gír, vá hvað ég er hrikalega glöð með danska vin minn "þann danska"
Það eina sem ég hef ekki staðið við er að borða mínar tvær brauðsneiðar á dag enda finnst mér oft betra að skipta út brauði fyrir grjón/kartöflur/pasta/ eða ávöxt.Jæja nú hugsa ég að eggin séu soðin - GÓÐA NÓTT!!
p.s. ég skrifa alltaf matardagbók á undirsíðuna "Trompmánuðurinn maí 2010", skrifa alltaf að morgni það sem ég ætla að borða og svo fer ég yfir það að kvöldi og lagfæri ef einhverjar breytingar hafa orðið....
Væri svo til í að vera jafn staðföst og þú með danska...er ekki alveg að finna gírinn núna, langar samt hrikalega að finna hann...spurning hvort gírkassinn sé bilaður :D
Gangi þér rosalega vel í hreyfingunni sem og öðru! Geng/skokka þér til samlætis 20. júní!!
Kv. Margrét