stađa mála....
03. maí 2010 klukkan 16:19
Mikið rosalega er ég nú ánægð með þá ákvörðun að helga maí mánuð "þeim danska". Það var nú reyndar þannig að strax á öðrum degi var afmælisveisla á dagskránni en það var nú í lagi, tæklaði það bara eins og ég gerði alltaf á sínum tíma (tímum þess danska). Borðaði grænmetið mitt áður en ég fór og fékk mér smakk af kökum en svo voru þarna líka pylsur og deig í pinnebröd þannig að þetta varð hæfileg blanda. Afmælið var haldið á útileikskóla rétt hjá Sognsvann í Osló og alveg rosalega notalegt, krakkarnir léku sér og fengu sér að borða þegar þau voru svöng, ekkert stress, engin ströng dagskrá, bara gleði og frjáls leikur
og umfram allt utandyra.
Ég skilaði Project Reportinu mínu í dag, fjúff....ég er ekki búin að vera neitt smá stressuð yfir því. Hef tekið allan skalan og hefur svartsýni og efi á eigin getu verið í aðalhlutverki. Ég var rosalega glöð þegar ég prentaði verkefnið út og labbaði með það út í skóla áðan. Hnúturinn í maganum er óðum að hverfa en herregud hvað ég er þreytt. Núna á ég eftir að leggja lokahönd á verkefni með vinkonu minni úr Dovre sem vitnar í wikipedia,....kræst og grrrrr en mér er bara farið að finnast þetta fyndið núna, anyway því verkefni verður skilað á miðvikudaginn. Þá eru BARA tvö próf eftir, þau eru 12. og 19. maí og já ekki má gleyma vettvangsferð til Son á fimmtudaginn þar sem skógar verða skoðaðir .....kemur á óvart
Síðan byrjar júníblokkin 31.maí þannig að ég fæ þarna 12 daga frí.
Ég ætlaði út að ganga eða hreyfa mig núna seinnipartinn en það gekk ekki eftir því Stefán Snær skellti sér í bíó með félögum sínum og Haukur er að vinna. Ég skulda þá bara hreyfingu, tek tvöfalt einhvern daginn
Það er bilað að gera í vinnunni hjá Hauk, við sjáum hann mjög lítið en mikið verðum við öll glöð þegar þessari törn lýkur hjá honum, sem verður í það minnsta lokið 17. maí en líklega í kring um 10. Því fyrr því betra.
Jæja best að horfa á Mjallhvíti með Þórði Loga og dorma yfir sjónvarpinu í kvöld en vera samt glaðvakandi þegar 71°N verður klukkan hálf níu
og umfram allt utandyra.Ég skilaði Project Reportinu mínu í dag, fjúff....ég er ekki búin að vera neitt smá stressuð yfir því. Hef tekið allan skalan og hefur svartsýni og efi á eigin getu verið í aðalhlutverki. Ég var rosalega glöð þegar ég prentaði verkefnið út og labbaði með það út í skóla áðan. Hnúturinn í maganum er óðum að hverfa en herregud hvað ég er þreytt. Núna á ég eftir að leggja lokahönd á verkefni með vinkonu minni úr Dovre sem vitnar í wikipedia,....kræst og grrrrr en mér er bara farið að finnast þetta fyndið núna, anyway því verkefni verður skilað á miðvikudaginn. Þá eru BARA tvö próf eftir, þau eru 12. og 19. maí og já ekki má gleyma vettvangsferð til Son á fimmtudaginn þar sem skógar verða skoðaðir .....kemur á óvart

Síðan byrjar júníblokkin 31.maí þannig að ég fæ þarna 12 daga frí.
Ég ætlaði út að ganga eða hreyfa mig núna seinnipartinn en það gekk ekki eftir því Stefán Snær skellti sér í bíó með félögum sínum og Haukur er að vinna. Ég skulda þá bara hreyfingu, tek tvöfalt einhvern daginn

Það er bilað að gera í vinnunni hjá Hauk, við sjáum hann mjög lítið en mikið verðum við öll glöð þegar þessari törn lýkur hjá honum, sem verður í það minnsta lokið 17. maí en líklega í kring um 10. Því fyrr því betra.
Jæja best að horfa á Mjallhvíti með Þórði Loga og dorma yfir sjónvarpinu í kvöld en vera samt glaðvakandi þegar 71°N verður klukkan hálf níu
Ég var agalega að vera ekki með myndavélina með....:( Skal blogga um þessa útileikskóla við tækifæri;)
#2
04. maí 2010 klukkan 06:00
Vonandi gengur þér vel í þessari verkefnatörn...og ertu svo að byrja á sumarönn, bara brjálað að gera. Flott hjá þér með danskann mánuð og vonandi færðu líka tíma til að hreyfa þig.