Prahlad Jani
01. maí 2010 klukkan 05:52
Veit ekki af hverju mér datt Bítlarnir og þeirra "jógaflipp" á blómatímabilinu þegar ég horfði á þetta....þessi maður hefur fastað í 65 ár og í 45 ár talaði hann ekki við neinn EN lifði í alsælu.....:S Segist geta lifað mjög lengi svona, en hver er þá tilgangur lífsins ef maður ætlar að búa í helli og ekki tala við neinn, ekki eiga nein samskipti..... Það er alveg klárt að mínu viti að við megum alveg endurskoða gildi okkar, það skiptir ekki öllu að eiga allt og geta allt og vera í flottu jobbi....en þetta sem sést á þessu myndbandi er e.t.v. öfgarnar í hina áttina 
