Uss, er það nú svindl og svínarí...! Það er kannski bara ágætt að Bauhaus opnaði ekki hér!!
Gott að Þórður Logi fylgist vel með því sem máli skiptir í lífinu og fegrar bæði umhverfið og lífið sjálft :)
Bauhaus
30. apríl 2010 klukkan 06:06
Í gær opnuðu Bauhaus risastóra verslun í Vestby. Ég og Þórður kíktum þangað með Bríeti, Birni og Amý, bara svona til að sjá og spá í hvort við sæjum einhver sniðug tilboð. Við komumst að því að norðmenn eru svoleiðis að láta taka sig í r-ið, þarna var fólk sem í vitfirringu sinni var að kaupa allskonar dót, allt frá garðblómum og upp í iðnaðarvélar á súper góðu veðri....eða það héldu þau allavega. Þarna var fólk með stórar innkaupakerrur sem flæddi svoleiðis úr. Það vildi nefnilega þannig til að við sáum blómapotta til að festa utan á svalir, þarna kostuðu þeir 169 kr en ég var nýbúin að kaupa mér í Plantasjen á 149, það munar um minna, 20 krónur á þessu!!! Það er nú bara eitt almennilegt brauð eða 4 kneppebrauð. Af því að þarna var auglýst opnunarhátíð þá héldum við að það væru einhver tilboð eða blöðrur handa börnunum eða ís eða eitthvað....en nei ekkert svoleiðis, þýsk níska á hávegum höfð. Eftir að hafa gengið þarna í gegn datt okkur í hug af því að úti var 18°hiti að stökkva inn í kaffiteríuna sem er áföst Bauhaus til að kaupa ís í brauði....eitt stykki kostaði næstum 30 krónur!!! Til að toppa þetta allt saman og gerði okkur endanlega fráhverf þessari verslun var að minibus með nokkrum jakkaklæddum mönnum sem töluðu þýsku lagði í stæði fyrir fatlaða!!! Fyrr má nú aldeilis vera andskotans frekja, þó þetta hafi verið háttsettir Bauhausarar frá Þýskalandi.
Á leiðinni í leikskólann í morgun rak Þórður Logi upp óp og sagði "mamma það er hægt að fara að kaupa blóm og setja út, sjáðu þarna" og þar með var tekin ákvörðun um að tímabært væri að kaupa blóm í fínu svalakassana og verður það gert næstu daga.
Á leiðinni í leikskólann í morgun rak Þórður Logi upp óp og sagði "mamma það er hægt að fara að kaupa blóm og setja út, sjáðu þarna" og þar með var tekin ákvörðun um að tímabært væri að kaupa blóm í fínu svalakassana og verður það gert næstu daga.
Margrét
#2
30. apríl 2010 klukkan 09:04
Sendu hann HEIM!!!!