Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Gærdagurinn, Haukur, Gróður, Veður og Skemmtileg bloggfærsla

27. apríl 2010 klukkan 07:45
Gærdagurinn:
Ég fór ekki út að hlaupa eða ganga í gær Undecided hefði haft svo gott af því vegna þess að skapið var ekki upp á sitt besta....eða það var þannig fyrripartinn - var að pirra mig á hópavinnu en tók svo þann pól í hæðina að skrifa slatta og finna heimildir fyrir kaflann sem "hópfélagi" minn skrifaði og vitnaði svo snilldarlega í wikipedia og nrk1.....en já ég vann aðeins í því, fann fjórar greinar sem ég sendi viðkomandi og sagði henni að hún gæti rennt í gegn um þetta og notað ....MAÐUR VITNAR EKKI Í WIKIPEDIA!!!!! DJÖÖÖÖÖ!!!! grrrrrrrrrrrrrrrr!!! LOFA ég skal ekki pirra mig aftur á þessari hópavinnu hér - bara neikvæðir straumar sem fylgja því!!
En jæja.....svo ég haldi áfram að segja frá gærdeginum...:
Síðan fór ég og hitti leiðbeinandann minn og hann er mjög spenntur fyrir verkefninu mínu og sendi mér svo komment á project reportið sem ég ætla að vinna í og senda honum síðan aftur í yfirlestur á fimmtudag en ég á að skila því á mánudaginn. Ég fékk slatta af kommentum frá honum og geri því ráð fyrir að þetta verði alveg tveggja dagsverka vinna....en það er líka allt í lagiLaughing Ég fæ góða æfingu í ensku þegar ég skrifa þessa rannsóknaráætlun og þarf að pæla í verkefninu þannig að þetta er vinna sem mun að öllu leiti nýtast mér síðar.
Allavega þá komst ég í betra skap við að hitta leiðbeinandann þó ég hafi verið hálf í sjokki áðan þegar ég opnaði skjalið með kommentunum frá honum en það er nú alltaf þannig Smile
Ég eldaði mat, horfði á uppáhaldsþáttinn minn "71°Nord" og steinsofnaði í sófanum zzzzzzz.

Haukur:
Haukur er í Glasgow núna, fór í loftið frá Keflavík kl 5 í morgun. Það var ekki flogið hingað til Osló þannig að hann fór þessa leiðina og svo þarf hann að bíða til kl 16 í dag þegar hann á flug hingað.....svona er það að koma frá eyju út í hafi.....ekki hægt að hoppa upp í næstu lest eða rútu til að komast heim til Norge.
Veðrið:
Í gær var mjög notalegt veður, það komu gróðraskúrir og hitastigið fór upp á við...vorangan í loftinu, mmmmm. Í dag ætlar að vera hlýtt og svona hálfskýjað, veðurspáin gerir ráð fyrir að hitastigið fari í 14°C í dag og á morgun á að rigna sem gerir það að verkum að tréin springa út. Ég sé það á björkinni sem er hér úti í garði að það vantar bara herslumuninn, þannig að smá rigning og hærra hitastig er klárlega málið.
Gróðurinn:
Ég ætla svo að taka mér göngutúr í vikunni með myndavélina og setja inn myndir af gróðrinum, veit að margir af lesendum mínum hafa mikinn áhuga á að sjá...... og ég tala nú ekki um allar lyngrósirnar sum munu springa út í maí jeminneini!!!
Heimferð:
Stefanía Finnboga í Varmahlíð spurði hvenær við ætluðum að koma aftur heim, það er á stefnuskránni vorið 2011. Það er samt auðvitað háð vinnu en Haukur var nú fyrir norðan og þar hafa menn ekki gleymt honum....en þetta á allt eftir að koma í ljós. Við erum opin fyrir öllu og auðvitað er vinna forsenda fyrir því hvar við setjumst að. Stefán hefði átt að fermast núna í vor en ákvað að fresta því og fermist því þegar við komum heim, ætli það verði ekki sumarferming í Skagafirði 2011 Laughing
En.....:
En það er svo langt þangað til, í millitíðinni eigum við eftir að taka á móti fullt af gestum, ferðast um Noreg já og ég að klára námið!!!
Áhugavert:
Í lokin ætla ég að benda ykkur á alveg hreint frábæran spjallþráð af feisbúkk sem Hjálmar Gísla ákvað að bjarga og varðveita á heimasíðu sinni, sjá hér.
Og að lokum:
Jæja best að koma sér að verki og eigið góðan dag!
Maður gerir það nú alltaf ósjálfrátt að pirra sig á svona hópavinnu en það sem mér finnst merkilegra er hvað lítil áhersla hefur verið lögð á gæði heimilda í námi hingað til hér í skóla. Menn komast upp með margt, við ættum kannski að bjóða uppá námskeið í heimildanotkun :-)
#1
27. apríl 2010 klukkan 17:57
ÓMÆ...brjálað að gera hjá þér, hefðir klárlega haft gott að hlaupa/ eða göngutúr. Dáist af dugnaðinum í þér í náminu, verkefni, ritgerð úff púff. Ha'de bra
#2
27. apríl 2010 klukkan 20:06

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.