helgin
25. apríl 2010 klukkan 06:53
Síðustu dagar hafa verið hálf einmannalegir hjá okkur mæðginunum, Haukur komst til Íslands á fimmtudag og á flug til baka á morgun, mánudag. Það er þó ekkert öruggt að hann komist akkúrat þá - vindáttir og öskufall ráða því.
Það var mjög rafmagnað andrúmsloft hér á heimilinu á fimmtudag og föstudag, allir alveg til í að vera á Íslandi þó það hafi ekki verið sagt upphátt. Strákarnir voru að gera mig gráhærða, gerðu ekki annað en að rífast og pirrast út í hvorn annan....
Við höfum haft það ágætt annars. Skruppum á bókasafnið og fengum lánaðar nokkrar myndir, þannig að kvöldin hafa verið "dekkuð". Í gær skruppum við til Ski í bíó á "Alvin and the chipmunks 2" síðan fórum við aðeins í búðir og þegar heim var komið var sest út á svalir í góða veðrinu. Okkur var svo boðið í grill til Bríetar og Björns, vorum að tala um það þegar við sátum úti og borðuðum að þetta væri svona júnístemming á Íslandi
sátum semsagt um klukkan átta að kvöldi og borðuðum kvöldmat í lopapeysunum.
Í dag ætlum við drengirnir að bruna til Askim til Stínu móðursystur minnar og ætlum að taka rúnt með henni til Töcksfos í Svíþjóð að versla eitthvað í frystinn
Ég reikna svo með að nota kvöldið til að lesa og læra en lítið hefur farið fyrir því um helgina.
Læt þetta duga í bili, góðar stundir
Það var mjög rafmagnað andrúmsloft hér á heimilinu á fimmtudag og föstudag, allir alveg til í að vera á Íslandi þó það hafi ekki verið sagt upphátt. Strákarnir voru að gera mig gráhærða, gerðu ekki annað en að rífast og pirrast út í hvorn annan....

Við höfum haft það ágætt annars. Skruppum á bókasafnið og fengum lánaðar nokkrar myndir, þannig að kvöldin hafa verið "dekkuð". Í gær skruppum við til Ski í bíó á "Alvin and the chipmunks 2" síðan fórum við aðeins í búðir og þegar heim var komið var sest út á svalir í góða veðrinu. Okkur var svo boðið í grill til Bríetar og Björns, vorum að tala um það þegar við sátum úti og borðuðum að þetta væri svona júnístemming á Íslandi
sátum semsagt um klukkan átta að kvöldi og borðuðum kvöldmat í lopapeysunum.Í dag ætlum við drengirnir að bruna til Askim til Stínu móðursystur minnar og ætlum að taka rúnt með henni til Töcksfos í Svíþjóð að versla eitthvað í frystinn