Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

allt og ekkert

22. apríl 2010 klukkan 10:58
Það er alveg vika síðan ég bloggaði almennilega síðast....tíminn flýgur áfram. Sumardagurinn fyrsti í dag!!!

Það er svolítill skólapirringur í mér núna.
Þoli ekki þegar maður er í hópavinnu og þeir sem eru með manni í hóp skilja ekki að maður notar fleiri en eina heimild .....og þar fyrir utan skilja ekki að það að nota framhaldsskólabók sem aðalheimild í vísindalegri ritgerð á mastersstigi!!!!
Ég þoli heldur ekki að þegar maður er búinn að segjast ætla að funda á ákveðnum tíma að þá mætir maður ekki hálftíma seinna!!!!...og segir ó ég svaf yfir mig...aftur...!!!
Það er bara svolítið erfitt að vera í hópastarfi og einkunnir manns eru háðar því að hluta til hvernig aðrir vinna - ég er ekki að fíla þetta...grrrrrr!
Geri ráð fyrir að taka umrædda ritgerð og geri hana að mestu sjálf, helgin/næturnar verða notaðar í það!!!

Fyrir utan skólann á ég mér líf og það verður að vera þannig svo maður haldi geðheilsu hérna!! Ég fór t.d. út að skokka með Gunnu og Hilde í gær. Við fjölskyldan gerum ýmislegt saman í frístundum og það er það sem ég verð að fókusera á til að halda lífi!!!
Það sem ekki drepur mann, styrkir mann!!!!

Ég er komin vel af stað með rannsóknaráætlunina mína varðandi mastersverkefnið, það mun væntanlega heita eitthvað á þessa leið: "Measurement system for certification of Carbon stock changes on an estate level due to afforestation in Iceland - a case study"
Mun funda með leiðbeinandanum mínum hér á mánudag en ég hef verið í símasambandi við tengiliðinn/meðleiðbeinandann á Íslandi.
Það er orðið ljóst að ég kem ekki heim í byrjun ágúst eins og til stóð. Ég mun koma og verja lengri tíma á Íslandi í haust við gagnaöflun, verð kannski eitthvað í kring um tíu daga þá.
Hlakka til að eyða sumrinu hér í Noregi, vona að við verðum heppin með veður Wink

Í dag er Haukur á leið til Íslands. Hann er núna staddur á Gardemoen að bíða eftir flugi, sýnist það vera "on time". Við verðum bara með honum í anda og vonumst til að hann komist svo aftur til baka á mánudaginn og þá með flatkökur, rúgbrauð (frá Geirabakaríi í Borgarnesi) og lakkrís;)

Ég og drengirnir ætlum að hafa það kósí hér heima um helgina, erum reyndar að spá í að skella okkur í bíó og kannski í gönguferð, strandferð eða í sund....verður allt metið jafnóðum Cool

Læt þetta duga í bili kæru vinir.
Gleðilegt sumar allir Laughing

 
edda
...og lakkrís.
Algert aðalatriði ;o)
#1
22. apríl 2010 klukkan 11:11
Gleðilegt sumar og eigið góða helgi :) Vonandi leysist hópavinnuvandamálið friðsamlega og svo allir eru sáttir :) Skil vel að hægt er að vera pirraður í hópavinnu. Þegar ég var úti þá var ég "ekki" að standa mig að annarri sögn þótt ég var að gera mitt besta. Ég varð líka pirruð (út í sjálfan mig) yfir að ná ekki að standa mig nógu vel til að standast kröfur hinna. En maður gerir sitt besta, hver sem á í hlut, og meira getur maður ekki gert. Samnemendur eiga að bera virðingu fyrir hópavinnu og gera sitt besta, en ekki ætlast til að hinir vinni alla vinnuna. Enn og aftur gangi þér vel og til hamingju með Mastersverkefnis- titilinn :)
#2
22. apríl 2010 klukkan 11:17
 
Rakel
Gleðilegt sumar Sigga
Hér er auðvitað þriggja stiga frost og snjóaði heilmikið í gærkvöldi þannig að þetta er allt eins og venjulega á sumardaginn fyrsta. Verkefnið þitt hljómar spennandi. Hlakka til að heyra meira um það.
kv
Rakel
#3
22. apríl 2010 klukkan 14:08
Gleðilegt sumar gella!

Ánægð með þig að fara út að hlaupa :)
#4
22. apríl 2010 klukkan 20:00
 
Herdís Friðriksdóttir
Kannast svo sannarlega við hópavinnu síðan ég var í DK, það getur nú verið meiri hausverkurinn! En gangi þér vel með það, þetta verður allt búið áður en þú veist af hvort eð er.

Varðandi rannsóknina, spennandi by the way! Hver er leiðbeinandi frá Íslandi? Ertu búin að vera í sambandi við Bjarna Diðrik, the main guru? Hann er betri en enginn þegar kemur að ritgerðarvinnu.

Þegar þú kemur heim í rannsóknarvinnu í haust, vona ég svo sannarlega að leið þín liggi eitthvað um mínar slóðir, getur þú ekki skoðað eitthvað í Haukadalsskógi? Þú veist ég er með fínasta gestaherbergi, og fulla kistu af úrvals nautakjöti og heimabakkelsi svona yfirleitt.

Væri mjög gaman að fá að eins að sjá þig.

Gangi þér annars vel!

Herdís
#5
22. apríl 2010 klukkan 20:27
 
Sú ráðagóða
Hæ og gleðilegt sumar til ykkar allra. Rétt hjá þér þú villt fá góða einkunn og gera þetta vel svo þú gerir þetta bara upp á eigin spítur ef hinir eru sáttir við það þá er það þeirra vandamál að þeir kunna ekki eins mikið og þeir ættu að gera eftir námið.
Við vorum í fermingu hjá Boggu í dag og það báðu allir að heilsa.
Kveðja mamma
#6
22. apríl 2010 klukkan 22:07
mikið er ég sammála þér með svona hópavinnnu ... annars hef ég sloppið mjög vel við hana í vetur

kv. úr efra í Ås,
Eyjolfur
#7
23. apríl 2010 klukkan 15:54
 
Sólrún Halla
Blessuð skvís!

Innilega sammála þér með hópavinnu, maður vill að fólk skili jafn vel af sér og maður sjálfur. En þetta er auðvitað alltaf erfiðara þegar maður er með börn líka þar sem maður vill nýta þann tíma sem maður hefur yfir daginn til þess að sinna skólanum vel. En gangi þér vel með þetta.
Þrátt fyrir breyttar áætlanir vona ég að þú hafir enn tækifæri til þess að kíkja við í haust víst að þú kemst ekki í ágúst! EN þolinmæði þrautir vinnur allar og skólanum fer senn að ljúka og þá getur þú tekið þér smá pásu frá amstri skólans og dekrað við þig og strákana þína. Eigið góða daga, kveðja úr Arnarflötinni
#8
25. apríl 2010 klukkan 17:18
Jóna Lind KristjánsdóttirGleðilegt hlaupasumar vinkona :o)
#9
25. apríl 2010 klukkan 18:21

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.