Fimmtudagurinn fimmtándi
15. apríl 2010 klukkan 06:14
Langaði aðeins til að gefa ykkur smá rapport yfir hreyfingu það sem af er apríl:
Fim 1. apríl: Rösk ganga 4,3 km (39 mín)
Fös: Frí
Lau: Frí
Sun: Frí
Mán: Rösk ganga 4,5 km (42 mín).
Þri: Rösk ganga 3,6 (34 mín).
Mið: Rösk ganga 6 km (57 mín).
Fim: Skokk 3,5 km (31 mín).
Fös: Róleg ganga í skóginum 5,7 km (2 klst). og skokk 3,8 km (35 mín).
Lau: Frí.
Sun: Hjólatúr 8,4 km (39 mín). Fórum upp og niður brekkur til Danskerud og til baka.
Mán: Frí
Þri: Róleg ganga 2,5 km (30 mín).
Mið 14. apríl: Rösk ganga 4,5 (42 mín).
Skokkið er mjöööög hægt get ég sagt ykkur en þetta á allt eftir að koma. Skógarstígarnir eru allir að þorna og engir pollar sem stöðva mann þannig að manni eru allir vegir færir. Nú eru ekki nema 39 dagar þangað til ég mun hlaupa mitt fyrsta 10 km hlaup og því verð ég að spíta í lófana og koma mér upp úr göngufasanum.
Í dag stefni ég á að fara út að hlaupa áður en ég sæki Þórð á leikskólann. Síðan er stefnan sett á Skistorsenter að versla eitt og annað sem vantar m.a. hjólahjálm handa mér. Hugsa alltaf til Oddnýjar Sólveigar á Hvanneyri þegar ég fer niður brekkur á fleygiferð á hjólinu...án hjálms.
Stefáni er boðið í hyttetur með Mats vini sínum og hans fjölskyldu um helgina, alveg frábært bara. Þessi fjölskylda á hyttu í Svíþjóð við Vanern (stóra vatnið í Svíþjóð). Við fórum og hittum mömmu hans í gærkvöld til að vita hvernig þetta væri allt saman og hún var líka svona svakalega hress, minnti mig svolítið á Unni hans Ágústar rektors og Teddu, já skondið
Svona líka rosalega hress og vildi endilega að við kæmum inn og læti en við vildum nú ekkert vera að vaða inn svona....enda kom það svo flatt upp á okkur því okkur hefur verið sagt að norðmenn séu ekkert að bjóða manni inn si svona....en jæja fyrstu kynni voru mjög góð.Við fegnum leiðindarfréttir s.l. fösutdag, andlátsfréttir. Elsku Bjössi hennar Jónu (móðursystir Hauks) varð bráðkvaddur. Maður á besta aldri svo hress og kátur. Hugsum mikið heim til fjölskyldunnar en yljum okkur við góðar minningar um góðan, jákvæðan, glettin og skemmtilegan mann. Áður en við fluttum hingað út sl. sumar áttum við góðar stundir með þeim Bjössa og Jónu og þeirra afkomendum, held að kjötsúpuveislan og kókosbollukeppnin standi þar uppúr. Það er gott að eiga góðar minningar.
Haukur fer heim á jarðaförina sem verður þann 24. apríl, við hin verðum bara með í anda. Já allt er breytingum háð í þessu lífi.
Muna bara að lifa, njóta og vera sáttur, lifa í núinu.
Fínar æfingar hjá þér vinkona...svo er bara að bæta aðeins í fyrir 10 km :o) Þú klárar það örugglega. Bestu kveðjur frá Ísafirði
#2
15. apríl 2010 klukkan 09:45
Flottar æfingar! hlakka til að heyra hvernig gengur í 10k!
#3
15. apríl 2010 klukkan 14:16
Gangi þér annars vel með hreyfinguna, og góða skemmtun til Stefáns :)