tvö blogg á dag...
13. apríl 2010 klukkan 07:15
...léleg tímastjórnun/nýting það!!!
Verð bara að segja frá því að nú í þessari viku getum við nemendur við UMB tekið þátt í að velja nýjan rektor. Mjög spennandi, var að lesa aðeins í gegnum blogg frambjóðendanna en eitt af því sem næsti rektor mun þurfa að eyða miklum kröftum í er fyrirhuguð sameining UMB og dýralæknaháksólans í Osló. Samruninn mun eiga sér stað árið 2018......verð að segja ekki alveg íslenski hátturinn tekinn á þetta, þar sem skólar hafa verið sameinaðir án nokkurs ...nei þarna var ég ósanngjörn LÍTILS undirbúnings átti þetta að vera......say no more!
Auðvitað er þetta nokkuð stór pakki, það þarf að byggja skólabyggingu og einhversstaðar þarf að vera hægt að koma þeim fyrir sem munu kjósa að búa hér í Ås. Það er nefnilega ekkert víst að allir kjósi að "pendla" á milli Osló og Ås í framtíðinni.
Ef þið hafið áhuga á að forvitnast um kandidatana í rektorsvalinu þá getið þið skoðað það hér.

http://eyjolfuringvi.blog.is
Eyjólfur
Alltaf gott að hafa nægan tíma til að undirbúa hlutina ... held að fyrirtæki að nafni SiÅs myndi vilja hafa hann mun lengri svo þeim takist að gera allt sem þeir þurfa að gera :-)
#1
13. apríl 2010 klukkan 14:11