tímastjórnun
13. apríl 2010 klukkan 06:10
Til að finna út hvernig hægt er að bæta atferli mannanna þarf fyrst að finna út hvernig atferlið er, nokkuð "lógíst" er það ekki? Mér finnst því ágætt að spá í það hvernig ver ég mínum tíma og rýna í sjálfa mig og þ.a.l. að meta það hversu sátt ég er við afrakstur dagsins.
Ef ég tek daginn fyrir þá er þetta nokkurn vegin svona:
Vakna kl 6:30
Eyði næstu tveimur tímum í að koma mér og drengjunum í gang, smyrja nesti og sinna ýmsum heimilisverkum. Ég tek góðan kaffibolla, kanna stöðuna á fréttamiðlunum (íslensku eru sjaldnast vaknaðir, sér í lagi þegar sumartíminn er kominn á), skoða feisbúkkið, blogga kannski smá.
Að þessu loknu fer ég í skólann eða um klukkan hálf níu.
Mér þykir voðalega gott þegar eru fyrirlestrarlausir dagar, þá get ég sökkt mér niður í það verkefni sem ég er að vinna í , í það og það skiptið og þarf ekkert að hugsa um hvar ég þarf að vera klukkan eitthvað ákveðið.
Það er misjafnt, fer eftir úthaldi hverju sinni hvort ég tek hreyfinguna áður en allir koma heim eða á eftir. Uppáhaldshreyfingartíminn minn er á bilinu kl 15 til 17, sér í lagi ef maður er úti að sprikla. Þannig að ég er minnst sex og hálfan tíma út í skóla.
Við borðum frekar snemma, helst um klukkan sex og á milli sjö og hálf átta er Þórður gerður klár í háttinn.
Það er misjanft hvort ég sest niður við lærdóm á kvöldin, fer mest eftir dagsforminu og hve miklu ég hef komið í verk í skólanum fyrr um daginn. Þessi kvöldlærdómur er þá frekast í formi lesturs en skrifta.
Ég er að reyna að átta mig á þessu, finnst hálf fáránlegt að vera búin að eyða smá tíma í að blogga um þetta en.....svona er maður nú....sk....!!
Eigið góðan dag!

http://jonalindk.bloggar.is
Jóna Lind
Gott að vera með rútínu...en samt geta breytt eftir þörfum. Muna bara að gefa sér tíma í hreyfingu :o)
#1
14. apríl 2010 klukkan 09:29