Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Í dag...

09. apríl 2010 klukkan 07:17
Jæja þá er ég búin að skutla Þórði á leikskólann og vinnudagurinn að hefjast. Ég ætla að byrja á að fara út í skóg að taka myndir og spá og spegúlera með hópnum mínum í skógarvistfræði. Við eigum að gera úttekt á teig og koma með tillögur að framtíðar plani fyrir teigin. Í hádeginu er svo meiningin að hitta Pálínu og snæða með henni lunjs í kantínunni. Eftir hádegið mun ég sennilega kíkja í bækur og fara svo að skokka áður en ég sæki Þórð. Síðan þarf að versla inn ýmislegt til helgarinnar m.a. pizzugerðarefni en það er fastur liður á föstudögum. Það gæti líka farið svo að ég fari í klippingu og litun seinnipartinn Wink
Helgin verður tileinkuð lestri og verkefnavinnu hjá mér en Haukur og strákarnir ætla í veiðistangainnkaup Laughing
Eigið góða helgi kæru vinir!
Föstudagar eru frábærir dagar...og þú hefur nóg af verkefnum. Mér líst vel á hlaupin hjá þér í dag og að skella þér í klippingu...nauðsynlegt að líta vel út líka :o)
#1
09. apríl 2010 klukkan 09:00
Góða helgi :)
#2
09. apríl 2010 klukkan 12:34
Góða helgi og bestu kveðjur :)
#3
09. apríl 2010 klukkan 12:51

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.