miðvikurdagur til eintómrar gleði
07. apríl 2010 klukkan 07:25
Æfingaáætlun fyrir apríl og maí liggur hér til hliðar á undirsíðu sem heitir "Hlaupaprógramm apríl-maí". Þetta er hlaupaprógram sem ég fékk hjá þjálfara í Ås treningsenter, svolítið krejandi kannski en ég massa það!
Í byrjun júní fæ ég svo æfingaprógram fyrir stóra hlaupið í haust en góð kona á Íslandi ætlar að útbúa það fyrir mig, eftir að ég hef tekið tímann á mér í 10 km hlaupi
Í gær fór ég út að ganga eftir kvöldmatinn og svo mun ég skokka í dag.
Sit núna út í Sørhellinga í nýja fína lesplássinu mínu innan um alla hina skógarpúkana
Úti er þoka og raki en svo fer nú sólin að skína þegar líður að helgi og þá fer líka að hlýna verulega VORIÐ ER KOMIÐ!!
Njótið dagsins
Í byrjun júní fæ ég svo æfingaprógram fyrir stóra hlaupið í haust en góð kona á Íslandi ætlar að útbúa það fyrir mig, eftir að ég hef tekið tímann á mér í 10 km hlaupi

Í gær fór ég út að ganga eftir kvöldmatinn og svo mun ég skokka í dag.
Sit núna út í Sørhellinga í nýja fína lesplássinu mínu innan um alla hina skógarpúkana
Úti er þoka og raki en svo fer nú sólin að skína þegar líður að helgi og þá fer líka að hlýna verulega VORIÐ ER KOMIÐ!!Njótið dagsins
http://jonalindk.bloggar.is
Jóna Lind
ohhh elska vorið í Norge :o) Þú massar þessi hlaup, ekki spurning
#1
07. apríl 2010 klukkan 09:40
Margrét
Geggjað! Vorið er komið hingað líka! Frábært veður úti og mann langar bara til að fara að sinna vorverkunum og maður getur ekki beðið eftir að allt fari að grænka :D
Líst vel á hlaupaprógrammið hjá þér, er búin að hlaupa það mörgum sinnum í huganum og þetta er barasta ekkert svo erfitt :þ Spurning hvort það verði ekki örlítið strembnara í raun og veru.
Gangi þér að minnsta kosti vel með hlaupin ;) Ég er meira í svona nammihlaupi núna, en tek mig kannski á í sumar og vetur...markmiðið er að vera komin í fínt form fyrir fermingu frumburðarins...hvað eru mörg "eff" í því :D
Jæja...ætla að fara að prjóna á meðan krílin sofa ;)

#2
07. apríl 2010 klukkan 13:21
Sú ráðagóða
Já gamla settið er farið að æfa fyrir Noregsferðin. Förum í sund þrisvar í viku og í gær synti 300 m. stefni á að vera komin í 1 km um mánaðarmótin. Svo þegar snóa leysir sem sennilega verður um helgin (miða við veðurspá þá hvefst líka ganga. Svo er ég að byrja hjá einkaþjálfar í 8 vikna prógrammi.
kv. mamma
kv. mamma
#3
08. apríl 2010 klukkan 14:37
Mamma þú ert að massa þetta, lýst vel á þetta;)
#4
08. apríl 2010 klukkan 15:50