Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

eftirpáskablogg...eða sjokk!!

06. apríl 2010 klukkan 06:46
Þá hellist hversdagsleikinn yfir mann og maður fær sjokk yfir öllu sem liggur fyrir......og þá er að gera það sem ég er best í, að SKIPULEGGJA mig!!!
Ég fer í þrjú próf í maí. Ég þarf að skila þremur verkefnum og halda einn fyrirlestur núna í apríl. Ég þarf að lesa fullt af efni. AUk þessa verð ég að æfa svo ég nái hlaupamarkmiðinu mínu sem er að hlaupa 10 km í lok maí og svo er ég á leiðinni í hálft maraþon í haust þannig að ég verð að sinna æfingum líka.

Hugmyndin er að hafa þetta nokkurnvegin svona:
Mán: Hlaup
Þri: Ganga
Mið: Hlaup
Fim: Ganga
Fös: Hlaup
Lau: Ganga
Sun: Frí

Þá daga sem ég á að hlaupa fer ég eftir hlaupaprógrammi, sem þýðir að æfingarnar eru misjafnar (brekkuæfingar, intervalæfingar) en göngudagana ætla ég að fara allt frá 4 uppí 10 km, bara eftir skapi, veðri, vindum og tíma. Göngudagarnir gætu líka verið hjóla eða sunddagar. Ég er svona að vona að ég nái að hlaupa á morgnana en það er þó ekkert öruggt að það takist....sjáum til.
Nú fer að byrja mikil törn hjá Hauk í vinnunni (vinna frá kl 5-17) sem þýðir að ég verð að sjá um akstur í og úr leikskóla, þannig að ég býst við að geta hlaupið klukkan átta á morgnana, þá er ég komin í skólann um hálf tíu og get setið þar til fjögur....annars væri líka möguleiki að hlaupa á morgnana klukkan sex, áður en ég vek strákana.....hugs, hugs Undecided
Það er frábært að setja sér plan, það virkar best. Hafðu það helst skriflegt upp á vegg svo það er síður möguleiki á svindli heheh. Svo er að finna sér tíma...þú hlýtur aðfra létt með það ef þú ert góð í skipulagi heheh
#1
06. apríl 2010 klukkan 09:41

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.