Páskafrí
01. apríl 2010 klukkan 07:00
Eftir að ég ákvað að brjótast út úr vetrarhýðinu og gera eitthvað hvetjandi eins og til dæmis að skrá mig í hálft maraþon þá hefur allt verið á uppleið
Eitt af því sem maður þarf að æfa sig í þegar maður ætlar að hlaupa langar vegalengdir er að æfa úthaldið, vera að í langan tíma, því hef ég sett mér það markmið að með hefðbundum hlaupaæfingum tek ég langa göngutúra ca 1-2 klukkutíma langa helst tvisvar í viku. Það hljomar afar vel að taka 3 daga í hlaup og 2 daga í gönguferðir, þá eru 2 dagar eftir sem gætu því verið helgaðir hvíld. Ef ég væri á Íslandi þá væru það sunddagar en........já svona er það nú bara.
Síðan ég bloggaði síðast hefur lífið gengið sinn vanagang. Við kíktum í afmæliskaffiboð til Eyjólfs á mánudagskvöldið og eins og vanalega þá klikkuðu ekki kökurnar hans. Á þriðjudagskvöldið skrapp ég í bíó með Gunnu, Hrafnhildi og Hilde. Við sáum Crazy Heart með Jeff Bridges sem fékk óskarinn fyrir leik sinn í myndinni, þið getið séð trailer-inn hér. Mæli alveg með þessari mynd, hún lýsir eymdarlífi alkohólista og hvað lífið getur verið tilgangslítið og hvað þarf til svo fólk tekur á sínum málum. Hljómar kannski ekkert spennandi en þetta er mjög góð mynd og hafði mikil áhrif á mig.
Við Þórður vörðum gærdeginum hér heima við í tiltekt en það var svo mikil rigning úti að við vorum ekkert að eyða tíma í útiveru.
Seinnipartinn í dag eigum við von á íslenskum gestum frá Svíþjóð, þau Sverrir, Dana og Jóndi ætla að koma frá Uppsala og vera hér í nokkra daga
Við stefnum á að sýna þeim nágrennið en af nógu er að taka, það er bara að velja, Osló, Fredriksstad, Dröbak, Óskarsborg og svo auðvitað Ås en farinn verður gögnurtúr um háskólasvæðið hér undir styrkri leiðsögn Ragnars Finns sem er búinn að taka kúrs í byggingarsögu 
Stefán Snær kemur svo heim á páskadagskvöld og á annan í páskum er okkur boðið í mat til Teddýar og fjölskyldu í Asker, endalaus gleði
Læt þetta duga í bili og óska ykkur öllum gleðilegra páska.
Eitt af því sem maður þarf að æfa sig í þegar maður ætlar að hlaupa langar vegalengdir er að æfa úthaldið, vera að í langan tíma, því hef ég sett mér það markmið að með hefðbundum hlaupaæfingum tek ég langa göngutúra ca 1-2 klukkutíma langa helst tvisvar í viku. Það hljomar afar vel að taka 3 daga í hlaup og 2 daga í gönguferðir, þá eru 2 dagar eftir sem gætu því verið helgaðir hvíld. Ef ég væri á Íslandi þá væru það sunddagar en........já svona er það nú bara.Síðan ég bloggaði síðast hefur lífið gengið sinn vanagang. Við kíktum í afmæliskaffiboð til Eyjólfs á mánudagskvöldið og eins og vanalega þá klikkuðu ekki kökurnar hans. Á þriðjudagskvöldið skrapp ég í bíó með Gunnu, Hrafnhildi og Hilde. Við sáum Crazy Heart með Jeff Bridges sem fékk óskarinn fyrir leik sinn í myndinni, þið getið séð trailer-inn hér. Mæli alveg með þessari mynd, hún lýsir eymdarlífi alkohólista og hvað lífið getur verið tilgangslítið og hvað þarf til svo fólk tekur á sínum málum. Hljómar kannski ekkert spennandi en þetta er mjög góð mynd og hafði mikil áhrif á mig.
Við Þórður vörðum gærdeginum hér heima við í tiltekt en það var svo mikil rigning úti að við vorum ekkert að eyða tíma í útiveru.
Seinnipartinn í dag eigum við von á íslenskum gestum frá Svíþjóð, þau Sverrir, Dana og Jóndi ætla að koma frá Uppsala og vera hér í nokkra daga
Við stefnum á að sýna þeim nágrennið en af nógu er að taka, það er bara að velja, Osló, Fredriksstad, Dröbak, Óskarsborg og svo auðvitað Ås en farinn verður gögnurtúr um háskólasvæðið hér undir styrkri leiðsögn Ragnars Finns sem er búinn að taka kúrs í byggingarsögu 
Stefán Snær kemur svo heim á páskadagskvöld og á annan í páskum er okkur boðið í mat til Teddýar og fjölskyldu í Asker, endalaus gleði

Læt þetta duga í bili og óska ykkur öllum gleðilegra páska.
Margrét
Gleðilega páska kæra fjölskylda og góða skemmtun í öllu því sem þið takið ykkur fyrir hendur í páskafríinu :)
#2
01. apríl 2010 klukkan 12:47
Flott plan með gönguna til að æfa þolið :o)
hafðu það svo gott um páskana...GOD PÅSKE
hafðu það svo gott um páskana...GOD PÅSKE
#3
01. apríl 2010 klukkan 15:23
Sú ráðagóða
Hæ,
Gott að allt gengur ykkur í haginn. Við biðjum að heilsa Sverri og það verður örugglega gaman hjá ykkur. Skilaðu svo kveðju til strákanna þinna og gleðilega páska öll sömun.
Kveðja mamma
Gott að allt gengur ykkur í haginn. Við biðjum að heilsa Sverri og það verður örugglega gaman hjá ykkur. Skilaðu svo kveðju til strákanna þinna og gleðilega páska öll sömun.
Kveðja mamma
#4
02. apríl 2010 klukkan 13:50
Steinunn
Gleðilega páska :)))
#5
02. apríl 2010 klukkan 19:39
Gleðilega páska Sigga mín og skilaðu kveðju til strákanna þinna :)