Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

motivasjon, motivasjon, motivasjon!!!

28. mars 2010 klukkan 08:36
Já nú er ég á fullu í að hvetja sjálfa mig, setja fókusinn á langtímamarkmið sem ég virðist alltaf þurfa að hafa á bak við eyrað því annars næ ég engum árangri. Hef verið löt að hreyfa mig, hef borið fyrir mig annríki í skólanum sem er fáránlegt. Auðvitað á maður að setja hreyfinguna í forgang því þá líður manni einfaldlega betur.
Eftir að hafa spáð í þessu og sparkað reglulega í mig komst ég að niðurstöðu, ég verð að skár mig í keppni. Já, og það gerði ég!! Hafði fyrir löngu verið búin að spá í 10 km hlaup í Oslóarmaraþoni en nei....það er víst ekki nógu stór áskorun....ég gæti tæknilega séð hlaupið 10 km innan fárra vikna, miðað við þær framfarir sem áttu sér stað í haust þegar ég var MEGA dugleg að hlaupa. Ég er semsagt búin að skrá mig í hálft maraþon í Osló þann 26. september n.k. Búin að skrá mig og borga þátttökugjald. Já, stelpan sem slefaði 3 km á Landsmótinu á Akureyri í fyrrasumar ætlar að hlaupa 21 km í haust!!!
Planið er að fara eftir fína hlaupaprógramminu mínu til enda maí, þá byrja ég á sérstöku 1/2 maraþonsæfingaprógrammi. Ég veit ég get þetta vel, þarf bara að vera dugleg að hvetja mig áfram og halda mig við efnið Smile og ég fer létt með það fyrst ég er búin að skuldbinda mig á þennan hátt, þ.e. að borga fyrir það....merkilegt!!! HAHAHAHA!! Ekki er ráð nema í tíma sé tekið Smile

Fyrir utan hlaupaæfingar þá mun ég verða dugleg að ganga í sumar sem kemur í staðin fyrir hefðbundnar hlaupaæfingar þegar það á við.

Gönguferðir sumarsins eru á mótunarstigi en eitthvað liggur þó fyrir:
1.-3. júlí í Femundsmarka en til vara ef veðrið klikkar þá verður farið í Aurlandsdalen, þetta verður fjölskylduferð með Elverumfjölskyldunni og Teddu og sonum.
Einhverntíman á tímabilinu 9.-13. júlí verður skipulögð dagsganga með stórfjölskylduna í Norefjell.
Fyrstu gönguferðirnar verða þó farnar í apríl eða maí og þá eru þúsund möguleikar á dags eða helgar gönguferðum t.d. í Oslomarka.
Auk þessa er markmiðið sett á tvö fjöll:
Gaustatoppen fjallganga sem hentar allri fjölskyldunni.
Galdhöpiggen
Vá, það er ekkert smá sem liggur fyrir!!!

Var að hugsa til þess núna að veturinn og vorið 2007 vorum við Tedda rosalega duglegar að æfa, skokkuðum stuttar vegalengdir og lyftum tvisvar í viku, fórum að mig minnir í spinnig einu sinni í viku og þess á milli gengum við mikið. Í júlí það ár gengum við yfir Fimmvörðuháls ásamt fríðum flokki frá Ferðafélagi Íslands og það sem ferðin sóttist vel, við gengum þetta rösklega og fórum þetta á 6-7 tímum að mig minnir sem þótti bara ansi gott. Fann varla fyrir þreytu eftir þessa göngu sem sannar það enn og aftur hvað góður undirbúningur er mikilvægur.

Varðandi mataræðið þá er ég ekki á einhverju sérstöku fæði, borða bara hollt og gæti hófs. Get ekki hugsað um margt í einu og finnst það líka bara þónokkuð að hugsa um æfingarnar fyrir utan, fjölskylduna og námið Wink

Jæja best að hætta þessu í bili, læt ykkur fylgjast með, er farin út að skokka Tongue out
 
Sú ráðagóða
hæ, ég er nú búin að taka mína hreyfingu í morgun, var s.s. að elta hross. Það báðu allir í stórfjölskyldu Ollu ömmu fyrir kveðju til ykkar.
Kveðja mamma
#1
28. mars 2010 klukkan 12:35
 
Sú ráðagóða
hæ, þetta er s.s. taka tvö. ég var búin að babla eitthvað áðan ég ýtti á einhverja vitlausa takka og allt datt út. ég er búin að taka mína hreyfingu í morgun, hljóp á eftir hrossum sem sluppu og voru svo frelsinu fegin að þau hlupu þvers og krus um landareingir okkar og beggja vegin við okkur.
Það báðu allir að heilsa í stórfjölskyldunni hennar Ollu ömmu en afmælisveislan var í gær.
Kveðja mamma
p.s. Best að passa að ýta á rétta takka :)
#2
28. mars 2010 klukkan 13:24
Frábært plan hjá þér og gott að setja sér markmið til að halda sér við efnið. Hreyfing gerir manni ekkert nema gott og þó að það sé mikið að gera, eins og í skólanum þá verður þú öll hressari og orkumeiri ef þú gefur þér smá tíma til hreyfingar.
þú ferð nú létt með 21 km í Osloarmaraþoninu, ég byrjaði að hlaupa síðasta vor og fór 1/2 maraþon í júlí og gekk bara vel. Ég ætti kannski bara að skella mér til Oslo í september :o)
#3
28. mars 2010 klukkan 20:14
Skora á þig Jóna LInd!!!
#4
28. mars 2010 klukkan 20:16
 
Tedda
já Sigga þessi vetur og vorið 2007 var magnað hjá okkur, ekkert smá duglegar og það skilaði sér svo sannarlega.. held ég hafi ekki verið í svona góðu formi lengi.. Þessi Fimmvörðuháls stóð sko ekkert fyrir okkur...enda vorum við sko með almennilegt nesti, ekki einhverja kálhausa !! hehe... get ennþá fengið hláturkast yfir þessu.. við hefðum ekki haft mikið fyrir því að skella okkur áfram og taka Laugaveginn í framhaldinu.. hehe..
Sumarið framundan lítur bara vel út... ferðin til ykkar er þar á toppnum, farið að gæta mikillar spennu sem eykst dag frá degi.. þessi gönguferð er ekkert smá spennandi.
Ég vildi að ég væri svona aktív í hlaupunum eins og þú... humm... spurning um að skella hlaupaskónum bara á sig og byrja !! ... ohhh.. vantar þig til að draga mig áfram.. hehe..
Knús til þín og allra strákanna þinna
Tedda
#5
29. mars 2010 klukkan 08:57

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.