hæ hæ
Þú mátt nú ekki láta þér detta í hug að hætta að blogga, ég er t.d. búin að fara oft á dag inn til að athuga hvort ekki sé eitthvað komið. (sorry ég er trassi að kvitta, enda yrðir þú hundleið á að fá mörgum sinnum á dag koment frá mér) ég s.s. les bloggið yfir í vinnunni og svo opna ég það aftur og við pabbi þinn lesum það saman og svo opna ég það oft aftur ef ég þarf að segja einhverjum eitthvað frá ykkur og man kannski ekki staðarnöfn o.þ.h.
Gott að þið skemmtuð ykkur í Elverum. Ég hringi í þig einhvern tíman í vikunni.
Kveðja mamma
öppdeit
22. mars 2010 klukkan 14:11
Hef bara ekkert bloggað í meira en viku, hvað skildi valda því?? Jú, ég hef bara ekki haft þörf fyrir það. Tímaleysi er varla eitthvað sem maður ber fyrir sig því það að henda niður einni bloggfærslu eru ekki nein geimvísindi og tekur ekki langan tíma. Það er ekki eins og ég velti hverri setningu fyrir mér og velti fyrir mér hvort hún sé rétt uppbyggð eða full af stafsetningavillum, nei ég skrifa hér það sem kemur upp í hugann þá og þá stundina.
Ég er svolítið svekkt reyndar að ég er að fá yifr 30 heimsóknir á dag og hef ekki hugmynd hverjir það eru sem eru að lesa þetta blogg mitt, hér eru reyndar engin viðkvæm málefni rædd eða neitt sem ekki þolir að bloggheimar viti en ég hef aðeins velt fyrir mér að loka blogginu - en svo kemur alltaf upp í hugann að jú þeir sem ég veit að eru pottþétt að fylgjast með okkur hér og þykir þetta þægilegur máti og kannski fljótlegra en að hringja þá fæ ég jú smá samviskubit.
En þetta er nú bara svona "hugs"
Það var yndislegt í Elverum, eiginlega hálf hættulegt því ég væri sko alveg til í að búa á því svæði!! Við áttum ljúfar stundir með Oddnýju, Ola og Svavari. Pizzuveisla a la Oddný á föstudagskvöldinu og villibráðarveisla a la Ola á laugardagskvöldinu. Við fórum í Skogmuseum sem er snilldarsafn og mæli ég með því að fólk kíki þar við sem leið á um. Við fórum á skotæfingasvæði hersins og fengum að prófa að skjóta úr rifflum, höglurum og allskonar. Á sunnudeginum var Þórður hálfslappur og var ég því heima með hann á meðan karlarnir fóru til Budor og renndu sér á skíðum. Haukur fékk skíðabakteríuna og linnti ekki látum fyrr en við vorum búin að kaupa okkur svigskíði sem voru reyndar á útsölu í "Sporthuset" í Ski. Fengum skíði, klossa, stafi fyrir okkur bæði á innan við 7000 NOK. Klossarinir eru Technica og skíðin Head - þannig að þetta er ekkert slor get ég sagt ykkur.
Halla Kjartans kom hingað á mánudaginn en hún hélt til hjá Hrafnhildi og Ragnari en við fengum að sjá framan í hana af og til. Á fimmtudagskvöldið hittust flestar íslensku konurnar hér í Ås og meira segja kom Oddný en hún gisti hér því það vildi svo heppilega til að hún þurfti að fara á fyrirlestur í Osló á föstudeginum.
Ég fór í skogökonomi próf á föstudaginn og gekk hræðilega illa, skil ekkert í mér að hafa valið það fag &&$$"##/)("$$. Ég fékk í annað eyrað á fimmtudaginn sem ágerðist bara og var ég frekar slæm á föstudaginn en eftir að hafa fengið sterakrem sem ég bar inní það þá sló það mjög fljótt á.
Berglind (Bebba) kom til Norge á laugardaginn og fórum við drengirnir uppá Gardemoen að sækja hana, hún kom með páskaegg handa okkur mmmmm!! Síðan var nú ætlunin að kíkja á skíðabrekkuna við Moss og kom Bebba með okkur í það, okkur leist reyndar ekki á blikuna og keyrðum í staðin til Son, þar var frábær brekka fyrir svona stiðrbussa eins og okkur en lyftan var lokuð
Við fengum þennan líka fína bíltúr út úr þessu og borðuðum nestið okkar við grillhyttuna í Lesterberg.
Á sunnudaginn fréttum við svo af gosinu og fór morguninn í að fylgjast með því en svo skelltum við okkur til Svíþjóðar, ég, Berglind og Stefán og komum við á flugvellinum í Rygge og tókum Gunnu með okkur sem var að koma frá Prag. Við versluðum slatta og enduðum daginn í Tapas og rauðvíni hjá Gunnu.
Dagurinn í dag hefur verið tileinkaður ritgerð sem ég er að skrifa en auk þess hef ég fylgst mjög grant með framgangi eldgossins heima. Hér er mjög mikið fjallað um eldgosið og sérfræðingarnir þyrpast í sjónvarpið til að diskutera hvað gæti hugsanlega gerst.
Jæja, læt þetta duga í bili. Sýnist á fréttum að sett verði lögbann á verkfall flugvirkja þannig að Bebba kemst heim á morgun ....því miður....
Hlaupaskórnir hafa verið í hvíld hjá mér en þeir verða teknir í notkun aftur á morgun og ég verð einbeitt og rúlla viku tvö upp.
Góðar stundir.
Ég er svolítið svekkt reyndar að ég er að fá yifr 30 heimsóknir á dag og hef ekki hugmynd hverjir það eru sem eru að lesa þetta blogg mitt, hér eru reyndar engin viðkvæm málefni rædd eða neitt sem ekki þolir að bloggheimar viti en ég hef aðeins velt fyrir mér að loka blogginu - en svo kemur alltaf upp í hugann að jú þeir sem ég veit að eru pottþétt að fylgjast með okkur hér og þykir þetta þægilegur máti og kannski fljótlegra en að hringja þá fæ ég jú smá samviskubit.
En þetta er nú bara svona "hugs"

Það var yndislegt í Elverum, eiginlega hálf hættulegt því ég væri sko alveg til í að búa á því svæði!! Við áttum ljúfar stundir með Oddnýju, Ola og Svavari. Pizzuveisla a la Oddný á föstudagskvöldinu og villibráðarveisla a la Ola á laugardagskvöldinu. Við fórum í Skogmuseum sem er snilldarsafn og mæli ég með því að fólk kíki þar við sem leið á um. Við fórum á skotæfingasvæði hersins og fengum að prófa að skjóta úr rifflum, höglurum og allskonar. Á sunnudeginum var Þórður hálfslappur og var ég því heima með hann á meðan karlarnir fóru til Budor og renndu sér á skíðum. Haukur fékk skíðabakteríuna og linnti ekki látum fyrr en við vorum búin að kaupa okkur svigskíði sem voru reyndar á útsölu í "Sporthuset" í Ski. Fengum skíði, klossa, stafi fyrir okkur bæði á innan við 7000 NOK. Klossarinir eru Technica og skíðin Head - þannig að þetta er ekkert slor get ég sagt ykkur.
Halla Kjartans kom hingað á mánudaginn en hún hélt til hjá Hrafnhildi og Ragnari en við fengum að sjá framan í hana af og til. Á fimmtudagskvöldið hittust flestar íslensku konurnar hér í Ås og meira segja kom Oddný en hún gisti hér því það vildi svo heppilega til að hún þurfti að fara á fyrirlestur í Osló á föstudeginum.
Ég fór í skogökonomi próf á föstudaginn og gekk hræðilega illa, skil ekkert í mér að hafa valið það fag &&$$"##/)("$$. Ég fékk í annað eyrað á fimmtudaginn sem ágerðist bara og var ég frekar slæm á föstudaginn en eftir að hafa fengið sterakrem sem ég bar inní það þá sló það mjög fljótt á.
Berglind (Bebba) kom til Norge á laugardaginn og fórum við drengirnir uppá Gardemoen að sækja hana, hún kom með páskaegg handa okkur mmmmm!! Síðan var nú ætlunin að kíkja á skíðabrekkuna við Moss og kom Bebba með okkur í það, okkur leist reyndar ekki á blikuna og keyrðum í staðin til Son, þar var frábær brekka fyrir svona stiðrbussa eins og okkur en lyftan var lokuð
Við fengum þennan líka fína bíltúr út úr þessu og borðuðum nestið okkar við grillhyttuna í Lesterberg. Á sunnudaginn fréttum við svo af gosinu og fór morguninn í að fylgjast með því en svo skelltum við okkur til Svíþjóðar, ég, Berglind og Stefán og komum við á flugvellinum í Rygge og tókum Gunnu með okkur sem var að koma frá Prag. Við versluðum slatta og enduðum daginn í Tapas og rauðvíni hjá Gunnu.
Dagurinn í dag hefur verið tileinkaður ritgerð sem ég er að skrifa en auk þess hef ég fylgst mjög grant með framgangi eldgossins heima. Hér er mjög mikið fjallað um eldgosið og sérfræðingarnir þyrpast í sjónvarpið til að diskutera hvað gæti hugsanlega gerst.
Jæja, læt þetta duga í bili. Sýnist á fréttum að sett verði lögbann á verkfall flugvirkja þannig að Bebba kemst heim á morgun ....því miður....

Hlaupaskórnir hafa verið í hvíld hjá mér en þeir verða teknir í notkun aftur á morgun og ég verð einbeitt og rúlla viku tvö upp.
Góðar stundir.
Sú ráðagóða
#2
22. mars 2010 klukkan 17:58
kem alltaf reglulega :) kvitt þó mun sjaldnar Sorry. Ég geri þó eins og fyrri viðmælandi og kem ca. 3svar á dag við að bíða eftir bloggi... veit því ekki hvort það skekkir talninguna :) Gaman að fylgjast með ykkur. Gott að allt gengur vel og Elverum heillaði :) Bestu kveðjur frá Egilsstöðum : )
#3
22. mars 2010 klukkan 18:15
Thea
Ja, nå er det på tide å ta frem løpeskoene, Sigga! Jeg jogget 20 minutter uten pause før styrketreningen i dag - det føles bra! Håper du blir med igjen snart!
#4
22. mars 2010 klukkan 20:26
Eyjólfur
ég kíki alltaf reglulega við hér ... ég er hins vegar mun lengur að henda niður bloggfærslu þó það séu engin geimvísindi, ég fer alltaf í svona setningarfræðilegar pælingar :-)
#5
22. mars 2010 klukkan 21:08
Hrefna Jóhannesdóttir
hæ, ég tjékka alltaf reglulega á þér. Fæ nefnilega pínu nostalgíukast við að lesa bloggið hjá þér :) voða indælt!
#6
23. mars 2010 klukkan 08:31
Ég er nú ein af þessum diggu lesendum...en kvitta nú alltaf. Ég er einmitt að lenda í þessu sama með mína síðu, alltof fáir sem nenna að kvitta.
Annars sé ég að það hefur verið brjálað að gera hjá þér og þú að trússa um víðann völl. Ég hef keyrt i gegnum Elverum á ferð okkar yfir til Mora í Svíþjóð. Fínasti bær, en svo þarftu líka að kíkja upp til Lillehammer, hann er frábær :o) Það er greinilega líka nóg að gera í gestamóttöku...en þú þarft endilega að fara að draga fram hlaupaskóna aftur...koma svo :o)

#7
23. mars 2010 klukkan 09:05
Rakel
Bannað að hætta að blogga Sigga, það er svo gaman að fylgjast með ykkur þarna úti.
Hér á heimili er líka mikið fylgst með eldgosinu þar sem Fimmvörðuháls er okkur mjög hugleikinn :-) Í Fréttablaðinu í dag er flott kort sem sýnir nákvæmlega hvar eldgosið er staðsett á gönguleiðinni og nú er sagt að hraun sé farið að renna yfir sjálfa gönguleiðina. Sprungan er rétt fyrir ofan Morrinsheiðina. Við Bolli plönum ferð við fyrsta tækifæri og skorum á ykkur Hauk að koma með. Þetta gerir leiðina bara meira heillandi. Annars gengur hér allt vel með lilluna. Bestu kveðjur í bæinn.

#8
23. mars 2010 klukkan 09:54
Heiða
Við mæðgur fylgjumst að sjálfsögðu með ykkur, þannig að þú mátt EKKI hætt að blogga ;)
#9
23. mars 2010 klukkan 14:59
Heiðdís
Sælar. Ég lít alltaf öðru hvoru hér inn, skemmtilegt að geta fylgst með ykkur þarna í Norge, er alltof löt að kvitta - ég veit! Sé annars að þið hafið það gott. Við enduðum á að flytja aftur til Akureyrar, svo þú veist af mér þar :o)
#10
23. mars 2010 klukkan 17:44
Þórunn Harðar
Hæhæ! Auðvitað er ég alltaf að kíkja á síðuna þína Sigga mín - get alveg viðurkennt að vera ein af þeim sem kvitta sjaldan en ég er dyggur lesandi og vil alls ekki að þú hættir að blogga :-)
Frábært að heyra að þið hafið það svona gott þarna úti - ég var að fá bréf frá Björgu Stöm þar sem hún lofar Hauk í hástert; þakkar mér fyrir að hafa sent hann til þeirra og spyr jafnframt hvort ég þekki ekki einhverja íslenska leikskólakennara sem vantar vinnu í Noregi - amen og hallelúja! Annars er allt gott af okkur - hér gengur lífið sinn vanagang - saumó í kvöld hjá Stefaníu og þú mátt alveg vera með okkur þar í anda og hlæja dáldið!
knús frá mér.

#11
23. mars 2010 klukkan 19:34
Hildur í Holti
Bara að kvitta fyrir að ég fylgist alltaf með þér líka;) Þú ert bara svo góð í að koma orðum að hlutunum...svona "einmitt það sem ég var að hugsa". Ég tók 1.vikuna í hlaupaprógramminu en er búin að vera í veikinda/snjóa fríi þessa vikuna. Reikna ekki með neinum afrekum fyrr en eftir helgi.
Gaman að fylgjast með ykkur
Hildur
Gaman að fylgjast með ykkur
Hildur
#12
24. mars 2010 klukkan 10:01
jamm það er yndislegt að koma til Oddnýjar og Elverum og það svæði er geggjað. Oddnýjarpitsa og Ola villibráð er náttúrulega bara það besta sem maður kemst í, umm ég fæ alveg vatn í muninn
ég kíki reglulega við, sem þú veist því ég er nú frekar dugleg að koma með misgáfuleg komment á þig mín kæra
takk aftur fyrir mig, þetta var alveg yndislegt.
flugið gekk vel fyrir utan smá ókyrrð við lendingu, fílaði mig eiginlega eins og í innanlandsflugi, svo krappar voru dífurnar og hoppin.

#13
24. mars 2010 klukkan 10:10
Fátt og lítið að frétta héðan nema auðvitað gosið (sem manni finnst hálf óraunverulegt hérna á vestanverðu landinu) og það að það er helvítis rok úti!
Saumó annað kvöld...þú verður kannski með okkur í huganum :)
Knús í hús!