Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Norge i 2010

12. mars 2010 klukkan 07:27
Við Haukur fórum á foreldrafélagsfund í bekknum hans Stefáns í gær. Málefni fundarins var órói og óviðunandi vinnunæði í bekknum, skólaferðalag sem á að fara haustið 2011 (já ég skrifaði rétt 2011!!) og einelti.
Það er einn nemandi í bekknum sem hefur orðið fyrir einelti í vetur en það eru ekki bekkjarfélagarnir sem eru gerendur, einelti (n. mobbing) er ólöglegt og því er tekið á því hið snarasta en forledrar voru beðnir um að vera vakandi fyrir líðan barnanna sinna.
Síðan var farið að tala um óróan í bekknum, þetta á sér reyndar ekki stað þegar Ellen umsjónarkennarinn er með bekkinn heldur þegar aðrir kennarar koma inn. Hvað veldur, svarið er einfalt.
Málið er að í bekknum eru 25 krakkar, 7 stelpur og 18 strákar. Í haust voru tveir umsjónarkennarar Ellen sem er raungreinakennari og Renate sem er norksu og enskukennari. Renate veiktist í október og varð því "sykemelt" og í staðin fyrir hana var fenginn afleysingakennari í gegn um "Addekko" sem er svona afleysingafólksskrifstofa, eins konar miðlari. Til að gera langa sögu stutta þá er staðan sú að Renate verður "sykemelt" til sumars. Afleysingakennarinn sem var lengst með norksuna fékk fast starf í amerískum skóla í Osló, sko afleysingakennarinn í norsku var bandarísk kona sem talaði sænsku!!!
Nú er svo komið að enginn kennari er til að kenna norksu og þannig hefur það verið í rúman mánuð. Það finnst ekki fólk, þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar og leit. Mér finnst þetta óviðunandi. Þetta hefur einnig haft það í för með sér að Ellen raungreinakennarinn er orðin umsjónarkennari og tengiliður allra barnanna í bekknum og er í meira en 100% starfi. Þessi óstöðugleiki og það eru sífellt nýjir kennarar að koma inn veldur að sjálfsögðu óróa í bekknum og erfitt við það að eiga. Hér vantar starfsfólk inn í skólana, sárlega!!!
Hugsið ykkur, ég hef hitt Ellen kennara á óformlegum fundi okkar á milli og þá hittumst við á kaffihúsi því það er ekki aðstaða fyrir kennarana til að spjalla við foreldra í skólanum, hún tekur með sér verkefni nemenda og bækur heim til að fara yfir því hún er með smá vinnuaðstöðu heima hjá sér og litla sem enga aðstöðu í skólanum. Finnst ykkur þetta í lagi??? Og eins og hún sagði á fundinum í gær, "vi er i Norge 2010!"
Svo var annað sem kom til tals, það er bara hægt að opna einn glugga í einu í kennslustofunni...jebb en sem betur fer er reyndar lokan á einum biluð þannig að hann er alltaf opinn og þá er hægt að hafa tvo glugga opna!!!
Svo ég haldi áfram með fundinn þá var einnig verið að ræða væntanlegt skólaferðalag sem fara á í haustið 2011!!! ...og það sem hægt er að diskútera hlutina, jeminneini....ekki alveg íslenski stíllinn á þessu. Okey allt í lagi að skipuleggja í tíma en já sæll, við erum að tala um ferðalag eftir eitt og hálft ár!!!
 
Jóna Ţórunn
Maður kannast nú við þetta skipulagsæði. Ég byrjaði í mínum norska bekk þegar þau voru í þriðja bekk (4. bekk í raun) og þá var löngu búið að ákveða hvert ætti að fara i skólaferð (leirskole) 4 árum síðar (í byrjun 7. bekkjar). Ég held að það hafi þurft án gríns að panta þegar bekkurinn byrjaði í 1. bekk eða eitthvað álíka. Mjög kjánalegt þegar maður hugsar til þess en svona er þetta bara.
#1
12. mars 2010 klukkan 09:27
Jahér en ömurlegt ástand, þetta hljómar nú eins og ástandið var orðið hér fyrir kreppu þegar illa gekk að fá kennara og starfsfólk í leikskóla, því það höfðu það allir miklu betra í öðrum störfum sem tiheyrðu þennslunni. Núna streymir allskonar fagfólk í skólanna, uppeldismenntað fólk, sálfræðingar , verkfræðingar...lítið mál að manna leikskóla um þessar mundir. Vona samt að það sé ekki að skella á kreppa í Noregi
#2
12. mars 2010 klukkan 09:36
ræða þetta fram og aftur og aftur og fram og endalaust
hehe vá hvað ég sé þig fyrir mér njóta þessara málalengina, það er ekki alveg Siggu stíll
hafðu það gott um helgina mín kæra og við sjáumst um þá næstu
#3
12. mars 2010 klukkan 11:13
 
Hildur í Holti
Jahérna segi ég yfir þessu ástandi....svo kvarta þeir ægilega á Þórshöfn...þar er þó bara foreldravandamál en fín aðstaða!!
En að öðru...þá setturu inn fyrstu vikuna í hlaupaprógrammi í síðustu viku og ég er búin að standa mig að fara eftir henni. Svo nú er 1.vika búin og ég bíð spennt eftir næstu!!!
Kveðja til ykkar
#4
14. mars 2010 klukkan 15:57

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.