Ferđahugur
10. mars 2010 klukkan 08:31
Fengum heimsókn hér á mánudaginn, Þórunn Reykdal kíkti við í kaffi en hún var á NOVA-BOVA fundi hér í Ås. Hún kom með kaffipakka og einnig glaðning frá Eddu, Hagvers döðlur, lakkrís og lítil páskaegg. Allir glaðir með það, tusen takk Edda!! 
Vikan hefur annars verið aðgerðarlítil, ég er að myndast við að lesa fyrir próf, gengur erfiðlega en Þórður var heima í gær veikur og er líka heima í dag. Stefán er hálfslappur líka og er þess vegna einnig heima. Við vonum bara að þeir verði orðinir hressir á föstudaginn þegar við leggjum í hann til Elverum. Ætlum að heimsækja Oddný, Ola og Svavar. Stefnum að því að fara á skíði í Budor á laugardeginum og svo finnum við uppá einhverju á sunnudeginum, höfum aldrei komið til Elverum og því mikið hægt að skoða og sjá eins og t.d. skógarsafnið en þetta á allt eftir að koma í ljós en þetta verður eflaust ekki síðasta ferðin okkar á þessar slóðir trúi ég.
Það gengur vel að fara eftir nýja hlaupaprógramminu, bara tveir dagar búnir í viku eitt en ég hef góða tilfinningu fyrir þessu
Annars gengur lífið bara út á skóla og vinnu en við erum með plön um að nýta fríhelgarnar sem mest til ferðalaga enda er mikið að skoða hér og tíminn ískyggilega fljótur að líða, finnst eins og ég sé alveg að fara að flytja heim, bara rúmt ár eftir!!!
Páskarnir eru ekkert planaðir enn en við verðum eitthvað á faraldsfæti, því get ég lofað.

Vá flott skíðasvæði...njóttu :o)
#2
11. mars 2010 klukkan 13:25
Skógarsafnið er æði... Við Valdi fórum þangað þegar við vorum þarna á ferð en eina vandamálið var að það var alveg geðveikur hiti (júní) og ég þoldi varla við á útisvæðinu.. En þetta er stórt og skemmtilegt safn, gefið ykkur góðan tíma..
Bestu kveðjur úr þokunni á Íslandi
Guðrún B.