Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Í dag fór ég....

05. mars 2010 klukkan 16:44
...í Ås treningsenter og hitti Annicken. Hún lét mig fá hlaupaprógram sem hún mælti með og nær það yfir næstu tuttugu vikur, hvorki meira né minna! Ef ég verð einbeitt og held mig við efnið þá ætti ég að geta hlaupið 10 km og fara létt með það.
Eitt sem hún lagði mikla áherslu á er að þegar maður byrjar að fara eftir prógrammi eins og þessu þá:
1. Fara eftir prógramminu, ekki stökkva yfir vikur.
2. Passa að festa sig ekki við sömu hlaupaleiðina og ef maður er á bretti stilla hallann í ólíkar gráður og hafa svona "variasjon" í þessu.
3. Teygja VEL á eftir.

Miðað við þessi einföldu tips þá er ég alltaf að gera vitleysur þegar ég tek mínar hlaupadífur.
1. Ég fer aldrei nákvæmlega eftir prógramminu.
2. Ég vil oftast fara sömu leiðina.
3. Ég er löt að teygja.

Hlaupaprógammið er eins og áður sagði tuttugu vikna prógram og er miðað við að maður fari þrisvar í viku.
Ég byrja á morgun Wink

Vika 1. "Hovedvekt på å gå sammenhengende".
Dagur 1.

Ganga rösklega í 25 mínútur. Tempóið á að vera þannig að maður geti haldið uppi samræðum á meðan á göngu stendur.
Dagur 2.
Interval-æfing. Ganga rösklega í 10 mínútur. Skokk í 1 mín, ganga í 2 mínútur, skokk í 1 mín, ganga í 2 mínútur, skokk í 1 mín, ganga í 2 mínútur, skokk í 1 mín. Ganga í 5 mínútur.
Dagur 3.
Brekkuæfing. Ganga rösklega í 5 mínútur. Ganga upp brekku í 2 mínútur og skokka til baka niður brekkuna,ganga upp brekku í 2 mínútur og skokka til baka niður brekkuna, ganga upp brekku í 2 mínútur og skokka til baka niður brekkuna, ganga upp brekku í 2 mínútur og skokka til baka niður brekkuna. Ganga rösklega 5 mínútur.

Fyrsti dagur er á morgun, dagur tvö á mánudag og dagur þrjú á miðvikudag. Eftir viku læt ég ykkur vita hvernig vika 2 hljómar Smile

Veðrið hér er alveg frábært, sló öllu upp í kæruleysi eftir hádegið í dag og fór á skíði. Í morgun var -16,5° á hitamælinum í bílnum en uppúr hádeginu var hitastigið komið niður í -3° en þannig er þetta hér þessa dagana. Hitasveiflan er gífurleg. Í morgun kom sólin upp klukkan 7:03(heimild Østlandsbladet)....og já sólin skín!!!

Njótið helgarinnar Cool




Flott plan...þetta á eftir að ganga vel hjá þér :o)
#1
05. mars 2010 klukkan 18:11
 
Pálína
Bíð spennt eftir því að byrja með þér á morgun.

Heyrumst annað kvöld með fyrstu æfinga söguna ;O)

Kveðja frá Korsvoll
#2
05. mars 2010 klukkan 22:33
já ég á einmitt til það sama og þú, fara ekki alveg eftir prógramminu, fara sama hringinn og guð hvað ég nenni aldrei að teigja!!!
#3
08. mars 2010 klukkan 08:41
 
Thea
Høres ut som et bra program :-) Jeg snakket med Roddy etter treningen i dag og spurte ham om han kunne hjelpe meg litt med et løpeprogram som kan passe til Holmenkollstafetten i mai. Det var forresten veldig bra trening i dag, men savnet deg! Jeg måtte være sammen med en tenåring som ikke gadd å gjøre noe! Lite motiverende!! Da er det mye bedre å trene sammen med deg! Håper du blir med på onsdag :-)
#4
08. mars 2010 klukkan 20:13
 
Ása D.
Flott plan Sigga - já og fara nú eftir því stelpa heheheh........gott að heyra þetta með ráðin - kannski ég fari að snúa hringnum amk við hehehe......gaman líka að lesa komment á norsku hérna ;)
#5
09. mars 2010 klukkan 19:09
 
Ása D.
Hvað með þyngdarmarkmiðið í febrúar - náðist það?? Bara svona spyr ;o)
#6
09. mars 2010 klukkan 19:35
Þorði ekki á vigtina, veit upp á mig skömmina..... en er reyndar að bræða það með mér að vera ekkert að stefna að 67 kg bara að vera sátt ef ég kemst undir 70 :) Þá er ég fín og ekki í áhættuhóp (BMI)
#7
10. mars 2010 klukkan 08:17

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.