Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

MEST ER EKKI BEST!!

01. mars 2010 klukkan 19:04
Var að lesa umræðuþráð á netinu þar sem kona ein var að biðja um ráðleggingar varðandi hlaupaprógramm. Til að svara henni var ein af fræknustu hlaupadrottningum Íslands sem hefur yfir 25 ára reynslu af hlaupum og 10 ár í þjálfun hún sagði eina gullsetningu sem mér þótti ansi góð: "MEST ER EKKI BEST"!
Það er nefnilega málið, fólk á það nefnilega til að ofkeyra sig, ætla sér of mikið en til hvers??
Ég hef verið nokkuð dugleg að fara í tíma í Ås treningsenter í það minnsta tvisvar í viku en svo hefur það verið planið að bæta inn hlaupaæfingum og hef ég legið yfir allskonar hlaupaprógrömmum. Hef ekki enn fundið það eina rétta fyrir mig.
Það er mikilvægt að gera eitthvað annað en bara að hlaupa sem ég geri jú með þessum tímum í treningsenterinu og eins og hlaupadrottningin sagði þá er jú mjög gott að taka eitthvað annað með eins og t.d. leikfimi eða yoga.
Ég talaði við einn þjálfarann í Ås treningsenter og ætlum við að hittast á föstudaginn í þessari viku þar sem útbúið verður hlaupaprógram með mínar þarfir, getu og markmið í huga. Markmiðið er ekki að verða best, nei takk! Mitt markmið er að ég verði í góðu formi, tilbúin í afrek sumarsins (gönguferðir úti í náttúrunni og á fjöll eru jú mitt helsta áhugamál) og auðvitað að vera klár í slaginn og hlaupa 10 km Cool
Ég held að lykillinn að velgengni sé að fá aðstoð hjá fagfólki þegar maður er að setja sér markmið - sérfræðingarnir eru jú til þess....ég meina ekki er ég sérfræðingur í hreyfingu - sérhæfingin mín er meira tengd skógum Laughing
Slátrarar slátra, snyrtifræðingarnir vaxa mann, hárgreiðslukonurnar klippa mann, bifvélavirkjar gera við bíla, læknar lækna og svo framvegis......
 
Ása D.
Nákvæmlega Sigga - maður verður að hugsa frekar um gæði en magn - að fá eitthvað útúr æfingunni í stað þess að hlaupa bara til að hlaupa og ofkeyra sig - held meira að segja að maður geti sparað tíma með því að hlaupa "rétt" - og bætt sig í leiðinni heheh

......ég var að koma að sunnan - full af gleði og orku - það var svo mikið sólskin og fallegt í borginni - og á leiðinni ákvað ég að drífa mig út að hlaupa áður en ég sest niður við að læra undir próf......þegar ég kom á eyrina var svo bara dökkt yfir að líta - og éljagangur - en viti menn - sólskinið elti mig - og auðvitað fer ég út með ipodinn í eyrunum (finnst hlaupaprógrammið sem ég er með í honum rosa fínt) - og poka í hlaupaskónum svo ég verði ekki blaut í fæturna í öllu slabbinu á götunum :D

kærar kveðjur til júgróvisíonlandsins.......

Ása yfirtása :D
#1
02. mars 2010 klukkan 13:14
Ása Dóra FinnbogadóttirHahahah - og já Sigga ég bloggaði - og aftur í dag!!!
#2
02. mars 2010 klukkan 15:55
Já mest er ekki best...þetta var hún Martha og hún er hlaupaþjálfarinn minn, gerir frábær hlaupaplön og tekur okkur hlauparana í jóga 1xí viku...hún er sko frábær :o)
#3
02. mars 2010 klukkan 21:00
þetta er svo akkúrat svona Sigga og maður á ekkert að gleyma því, takk fyrir að minna okkur á það
#4
08. mars 2010 klukkan 08:35

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.