Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Uppskriftablogg

28. febrúar 2010 klukkan 16:40
Þetta eldaði ég í gær:
4 - 5 Kjúklingabringur (má líka vera kjúlli í bitum skinnlaus).
1 - 2 bollir appelsínusafi
1 - 2 bolli vatn
1 laukur saxaður
4 hvílauksrif pressuð
2 appelsínur niðursneiddar
pipar
kanill
salt

Ég byrjaði á þvi að steikja bringurnar í olíu á pönnu og kryddaði með pipar og kanil. Setti þær svo í pott.
Setti vökvann í pottinn, ásamt, appelsínum, lauk og hvítlauk, setti svo smá meira af pipar og kanil og einnig salt.
Sauð í 30-40 mínútur og bar fram hrísgrjón og salat með þessu. Þetta þótti öllum á heimilinu rosalega gott og ekki var það slæmt að eiga smá afgang af bringunum sem ég setti í kjúklingasalat í hádeginu í dag  mmmmmmm!!


Þetta ætla ég að elda í kvöld:
Svínasnitsel
Marenering: Taco krydd (þetta í pokunum), pipar og olía - magn eftir smekk.
Svínasnitselið fór í mareneringu í morgun.
Síðan er planið að steikja snitselið á pönnu.
Meðlætið:
1 1/2 Paprika
3 Tómatar
1 Laukur
3 Hvítlauksrif
Sveppir (bara einhver slatti)
Allt steikt á pönnu og 3-4 msk salsa sósa sett saman við.
Hef ekki ákveðið hvort ég baki kartöflur með þessu eða sjóði grjón - sjáum til {#emotions_dlg.cool}

ummm girnó girnó
ég eldaði hjörtu í gærkvöldi
steikt á pönu, bætti svo við vatni og henti haug af grænmeti með til að kæfa helst hjörtun (mér finnast hjörtu ekki sérlega góð!) þetta heppnaðist ágætlega nema ég var greinilega aðeins utan við mig þegar ég muldi maldonsaltið yfir því þetta varð heldur salt hjá mér....
Það varð afgangur sem ég hafði ekki geð í mér til að hafa í hádegisnesti í dag!!
hehehehe
ég á pottþétt eftir að prófa kjúklingauppskriftina sem þú ert með þarna að ofan
ha det bra
#1
01. mars 2010 klukkan 08:27

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.