Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Ţađ er einmitt ţađ!!!

24. febrúar 2010 klukkan 17:28
Ja, hérna, það er vika síðan síðasta bloggfærsla var færð hér inn og því best að bæta úr því.
Ég eyddi afmælisdeginum í skólanum, fékk þessa líka svakalega fínu afmælisgjöf frá Pálínu súkkulaði og sturtusápu....tók því nú ekkert illa að fá sápu - en þessi gjöf var valin með markmiðin mín í huga, súkkulaðið fyurir hlaup og sturtusápa eftir Cool Drengirnir færðu mér blóm og ég eldaði fisk. Kvöldinu var eytt í símanum (með rauðvín í glasi) en Haukur fór að vinna þannig að já...hef alveg upplifað líflegri afmælisdag - saknaði eiginlega föstu gestanna minna en ég átti skemmtilegt símakvöld.
Seinnipartinn á  föstudaginn lögðum við af stað til Skövde, vourm komin þangað rétt fyrir níu en snjókoman var orðin ansi þétt og það moksnjóaði en seinna kom í ljós að þetta var líkelga mesta vetrarveðrið sem komið hefur á þessum slóðum þennan veturinn. Við áttum frábæra helgi með Sverri, Dönu og Jónda - gaman að endurnýja kynnin við ættingjana. Leigðum "stuga" sem rúmaði okkur öll alveg ágætlega, tvö herbergi með kojum og svefnsófi í stofunni. Við skoðuðum okkur um í Skövde, keyrðum til Skara og skoðuðum kirkjuna þar sem er sú elsta í Svíþjóð, fórum út að borða, á kaffihús, elduðum, versluðum og margt fleira. Fórum ekkert á skíði enda var varla færi vegna fannfergis og snjókomu!!
Við lögðum af stað heim á leið uppúr hádegi á mánudag og komum við í Nordby storsenter og gerðum innkaup, vorum hér heima rétt fyrir klukkan sjö um kvöldið.
Í gær vorum við heima, ég lærði helling og renndi yfir nokkrar greinar um hnignun regnskógana og loftslagsbreytingar.
Í dag var ég í skólanum í allan dag og skrapp svo í Ås treningsenter með Theu og Stefáni - hvað maður hefur gott af því að æfa!!! Segi nú ekki annað.

Set myndir inn á myndasíðuna fljótlega.....
En jæja þar til næst, ha de bra!
Frábært að fríið var gott, alltaf gaman að breyta til og flott að geta skellt sér á milli landa á nó tíme hehe. En svo er gott að komast í rútínuna aftur...og já það er frábært að æfa :o)
#1
24. febrúar 2010 klukkan 22:30
ÚÚ greinilega kósý og góð helgi.
Gangi þér vel í ræktinni og lestrinum
sjáumst vonandi bara fljótlega!!!
#2
25. febrúar 2010 klukkan 08:51
 
Pálína
Kvitta fyrir innlitið skógarkisi.......

Vonandi varstu ekki of dugleg í lestrinum í dag, óttast það þó.

Þú ert svo bévíti dugleg !

Hilsen
Pála
#3
27. febrúar 2010 klukkan 22:06

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.