Lykilorð og klósettmál
12. febrúar 2010 klukkan 07:08
Kannist þið við það vandamál að rugla saman notendanöfnum og lykilorðum og öllu því?? Ég er alltaf að lenda í þessu, þessa dagana. Maður þarf notendanafn og lykilorð í allt. Til að komast inn í skólabygginguna mína (Sørhellinga) á öðrum tímum en milli 8 og 16 þá verður maður að setja stúdentakortið í spes skanna og slá inn lykilorð svo lásinn á hurðinni opnist. Þetta á einnig við um ýmsar stofur í skólanum og það liggur við að maður verði að slá in númer til að komast á klósettið. Talandi um klósett, þessi umtalaða bygging sem ég stunda mitt nám í er ein af þeim flottustu hér við skólann, nýuppgerð og allt mjög flott. Hún var fyrst tekin í notkun árið 1979 en var þá byggð af vanefnum og var því komin í niðurnýðslu um 20 árum seinna. Fyrir tveimur árum var hún tekin í notkun aftur eftir miklar endurbætur sem kostuðu 250 milljónir NOK!!! Jebb, ég er að skrifa rétt, miklir peningar þarna á ferð. Enda var byggingin algjörlega tekin í gegn, byggð var hæð ofan á hana og gerðir loftgluggar þannig að hægt er að nýta miðjuplássin í byggingunni fyrir skrifstofur með gluggum - veit eiginlega ekki hvernig ég á að lýsa þessu en það eru op upp í gegn um alla bygginguna á nokkrum stöðum í miðjunni og þessi op ná upp í loftgluggana, eins og glerrör nema þetta eru ekki glerrör. Vinnuaðstaða starfsfólks og nemenda batnaði til mikilla muna. Þetta er umhverfisvæn bygging. Lessalir, vinnuherbergi fyrir hópa, kennslustofur, skrifstofur, bókasafn, kaffistofur nemenda, kaffistofur kennara, Kaffitería - allt undir sama þaki. Mér finnst aðstaðan í þessu ágæta húsi alveg til fyrirmyndar og það sem meira er, þeir tíma að kynda kofann. Það er reyndar eitt hvimleitt vandamál sem hefur skotið upp kollinum, allavega tvisvar síðan ég byrjaði og í annað skiptið núna í vikunni. Klósettsystemið er mjög tæknilegt og vatnssparandi.....en það eru svona takkar sem maður ýtir á til að sturta niður og þá fer svona sog í gang eins og maður þekkir frá ýmsum stöðum. Minnir að það sé svona system í Leifsstöð og svo í flugvélum og svo framvegis. Málið er að núna í vikunni þá bilaði eitthvað í systeminu þannig að ekki var hægt að sturta niður úr öllum klósettum í byggingunni
líklega eitthvað rafmagnsdót eða dæla sem hefur bilað en það er alveg svakalegt þegar bygging sem í eru nokkur hundruð manns er ekki með neitt nothæft klósett...eða jú kannski nothæf en yfirfull........
líklega eitthvað rafmagnsdót eða dæla sem hefur bilað en það er alveg svakalegt þegar bygging sem í eru nokkur hundruð manns er ekki með neitt nothæft klósett...eða jú kannski nothæf en yfirfull........
http://jonalindk.bloggar.is
Jóna Lind
obbob ekki er það nú gæfulegt...
#1
12. febrúar 2010 klukkan 08:45
smekklega, ég man einmitt vel eftir klósettinum sem lágu fyrir utan bygginguna eins og hráviði eftir að hafa verið kastað út úr henni þegar það var verið að laga hana til hehehe
#2
12. febrúar 2010 klukkan 09:25
eþ
shitt!!!!!!!!!!!!!!!
#3
12. febrúar 2010 klukkan 20:34