Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Þorrablót á morgun!!!!!!!!!!

05. febrúar 2010 klukkan 11:32
Nú er verið að undirbúa þorrablót hér að Åsi sem haldið verður annað kvöld. Það stefnir mikla þátttöku en við verðum eitthvað í kring um 25. Fyrir þennan fagnað höfum við fengið svokallað "fellesrom" sem er hér í kjallarnum í blokkinni.
Maturinn verður að okkar hætti:
Hangikjöt
Reykt tunga
Sviðasulta
Súrmatur af ýmsum gerðum
Hákarl
Harðfiskur
Rúgbrauð
Soðið brauð
Brennivín
Kartöflustappa
Rófustappa
Þetta verður sko alvöru Laughing Það er ekki pláss fyrir hljómsveit en geislaspilari verður brúkaður og sönghefti með nokkrum vel völdum þorraslögurum.
Fullorðnir og börn ætla að eiga saman skemmtilega kvöldstund að íslenskum sið.
Það sem eftir lifir dags verður tileinkaður þessu blóti en ég er nú á leið til Ski ásamt Hrafnhildi til að versla inn ýmislegt sem vantar (servéttur og þ.h.) í kvöld verður brauðið steikt og á morgun verður síðan stöppugerð ógurleg Wink
Haukur er meira að segja kominn í frí fram á sunnudagskvöld í tilefni af þessu Laughing og gestir væntanlegir, Valdi kemur frá Alnarp og Oddný og fjölskylda kemur frá Elverum.

Þetta verður svo gaman!!
Æðislegt :D Góða skemmtun!
#1
05. febrúar 2010 klukkan 11:38
æ en frábært maður lifandi, það verður geggjað gaman hjá ykkur.
Góða skemmtun og þú verður að skila risa kveðju á alla sem ég þekki þarna, ég verð með ykkur í anda!!
#2
05. febrúar 2010 klukkan 11:55
 
Sú ráðagóða
já við erum þá öll á þorrblóti annað kvöld þó svo að við séum ekki á sama stað en þorrablót Hóla- og Viðvíkurhrepp til forn verður annað kvöld.
Góða skemmtun
kv. mamma
#3
05. febrúar 2010 klukkan 12:11
Góða skemmtun :o)
#4
05. febrúar 2010 klukkan 12:36
Mín alveg Græææææn... af öfund.... Þetta verður hrikalega gaman hjá ykkur... Passaðu nú upp á að kallinn minn hagi sér vel....
Góða skemmtun
Guðrún B.
Hvanneyri
#5
05. febrúar 2010 klukkan 17:59

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.