Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Ćvintýraferđ í dag!

03. febrúar 2010 klukkan 18:10
Þórður Logi fór í skíðaskólann í dag með nokkrum krökkum af leikskólanum og einni fóstru. Þau fóru með rútu sem keyrði einnig krökkum frá öðrum leikskólum í grenndinni.
Á heimleiðinni vildi svo til að drengurinn sofnar í rútunni og þegar komið er að leikskólanum hans þá steinsvaf kappinn. Bente (fóstran) hafði ekki tekið eftir því að hann hafði sofnað og var komin út úr rútunni til að fá yfirsýn yfir börnin en þau eru ekki nema 6 eða 8 í skíðaskólanum. Nema hvað að þegar hún er að brasa þetta þá keyrir rútan burt!!!! OG Þórður Logi steinsofandi!!!!
Það upphófst þetta líka stress og fát á leikskólanum, og komust leikskólakonurnar að því m.a. að bílstjórinn var símalaus, þannig að þær þurftu að hafa upp á númeri hjá einhverjum öðrum starfsmönnum (frá öðrum leikskólum) til að láta vita að eitt barn hefði gleymst í rútunni!!!
Þórður var vakinn af einhverri ókunnugri manneskju í rútunni og leikskólastjórinn fékk að tala við hann til að segja honum að það væri allt í lagi og Kathleen (annar starfsmaður) myndi koma á bíl og sækja hann. Þórður var bara glaður með þetta, fékk að sitja frammí hjá rútubílstjóranum og voða hress með sig.
Eftir að Inger Lise leikskólastjóri hafði talað við Þórð hringdi hún strax í mig til að láta mig vita af þessu, mér fannst það gott hjá henni. Auðvitað hefði hún getað sagt mér þetta þegar ég sótti Þórð en æi mér fannst þetta mjög gott hjá henni. Kathleen náði svo í Þórð í barnaskóla í grenndinni og Þórður fékk eplasafa hjá henni á leiðinni í bílnum - þetta var heljarinnar ævintýri!!
Allir voru svo glaðir þegar ég kom að sækja kappann núna seinnipartinn en aumingja Bente var enn í sjokki og stressuðyfir viðbrögðum mínum.
Allt er gott sem endar vel sagði ég við hana, vona að hún sofi í nótt Wink
ÆÆ ég get vel sett mig í spor leikskólakennararna...ég er sjálf leikskólakennari og það er ekki gott að lenda í svona aðstæðum. En hann hefur fengið smá ævintýri út úr þessu.
#1
03. febrúar 2010 klukkan 19:22
 
Edda
já sæll þetta hefur sko verið ævintýr og að fá að brumma frammí hjá rútubílstjóranum
#2
03. febrúar 2010 klukkan 19:31
 
Sú ráđagóđa
Já, þegar maður vinnu samskonar vinnu þá er auðvelt að setja sig í spor leikskólkennarans. Ég prentaði þetta út og leifði mínum starfsmönnum að lesa og allir fengu kvíðahnút í magann. En allt er gott sem endar vel og flott að þetta endaði sem stórkostlegt ævintýri fyrir Þórð, sitja hjá bílstjóranum og fá svo eplasafa, getur ekki verið betra. Skilaðu kveðju til leikskólakennarans, svona getur alltaf komið fyrir en við vitum að það eru allir starfsmenn alltaf að gera sitt besta.
Kveðja úr snjóleysinu og frostinu á Hólum,
mamma
#3
04. febrúar 2010 klukkan 12:41
 
Rakel
Svalur karl hann Þórður Logi, ekkert að láta sér bregða við svona smá útúrdúr :-)
#4
04. febrúar 2010 klukkan 18:26

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.