Þriðjudagur til þrautar
02. febrúar 2010 klukkan 10:54
Maturinn í dag:
Mm: Kornfleks, léttmjólk, banani.
Hm: Kjúklingur, grænmeti, hrísgrjón.
3-kaffi: Appelsína.
Km: Buff og grænmeti (Stefán eldar).
Hreyfing: Sennilega engin markviss í dag, fór í spinning og pilates í gær.
Verð í fyrirlestri til kl 18 í dag
Annars verð ég að segja að hér er allt gott að frétta. Stefán hafði það gott hjá pabba sínum og fjölskyldu í Danmörku um helgina og þótti lítið mál að ferðast á milli einn. Munar mjög mikið um það að þurfa ekki að skipta um vél í Kaupmannahöfn en við fundum flug fyrir hann beint frá Gardemoen til Billund.
Við erum mjög ánægð með snjóinn en hér er búinn að vera snjór nánast alveg í tvo mánuði og frostið varla farið niður fyrir -10°. Núna er mikið um vinteraktivitet í skólunum, í næstu viku verður frí frá námsbókum í skólanum hans Stefáns en þá geta krakkarnir valið á milli nokkurra skíðagönguferða, skíðaferðar til Kongsberg, skauta eða gönguferð. Þórður hefur líka gönguskíðin með í leikskólann þannig að það er mikið verið að nota þessa árstíð, n.b. á öllum skólastigum.
Samkvæmt öllum spám þá fer snjórinn sennilega að gefa sig um páskana og þá kemur vorið. Við hlökkum líka til þess og ég tala nú ekki um sumarið
Ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram, eins gott að nýta veturinn vel!!

Ég sleppti ávexti í 10 kaffinu og fékk mér 75 gr af hrísgrjónum með hádegismatnum í staðinn;) Geri það stundum ef þannig liggur á mér;)
#2
02. febrúar 2010 klukkan 12:47
Ása D.
ohhh þú ert svo dugleg og skipulögð - vildi hafa smá snefil af ákveðninni þinni !!!
#3
02. febrúar 2010 klukkan 13:27
Mér finnst frábært hvað norðmenn taka vetrarsportin inn í skólana , mætta vera meira af þessu hér (gengi samt ekki upp þennan veturinn) Hér er allt enn snjólaust, þú skalt sko njóta vetrarins þarna úti því svo er hann bara búin eftir páska og þá er komið vor og hiti :o)