tja sko....
30. janúar 2010 klukkan 15:47
Íslenska handboltalandsliðið hefur staðið sig með prýði, þeir töpuðu fyrir frökkum og keppa því um bronsið á morgun. Svekkt?? Já ég er svekkt en svona er þetta bara. Mamma þú sleppur þá við að kaupa bjórinn
Góðu fréttirnar eru þær að þeir hafa aldrei unnið brons á stórmóti en þeir hljóta að ná því - tökum secret á þetta!! Þá eiga þeir bara eftir að næla sér í gullið. Kannski þeir geri það bara á HM í Svíþjóð á næsta ári????
Dagurinn er annars búinn að vera afskaplega rólegur, Þórður fór í afmæli hjá Paul sem er þýskur vinur hans en afmælið var haldið í Hurlumheihuset.
Góðu fréttirnar eru þær að þeir hafa aldrei unnið brons á stórmóti en þeir hljóta að ná því - tökum secret á þetta!! Þá eiga þeir bara eftir að næla sér í gullið. Kannski þeir geri það bara á HM í Svíþjóð á næsta ári????Dagurinn er annars búinn að vera afskaplega rólegur, Þórður fór í afmæli hjá Paul sem er þýskur vinur hans en afmælið var haldið í Hurlumheihuset.
Sú ráðagóða
Já ég slepp við það, en strákarnir eru búnir að standa sig frábærlega aðeins með eitt tap og vonandi verður það þannig áfram.
#1
30. janúar 2010 klukkan 18:07
Heil og sæl..
Mikið er gaman að heyra af ykkar lífi þarna úti.... Ég ætla rétt að vona að hann Haukur sé að fá almennilega borgað fyrir þessa þrælavinnu sem hann er í.... Og sólarströnd.. Láttu það bara eftir honum... það er örugglega nææææssss..... Þvílíkt hreyfingar og hollustuplan.. Mitt bliknar við hliðina.. annars fór ég í spinning í morgun.... Það er hreyfing sem hentar mér en nárinn á mér er ekki alveg sammála.... Ég hökti um núna, ekki út af eymslum almennt heldur bara út af bévítans náranum... En þetta var gaman og vonandi kemst ég í fleiri tíma.....
PS. Vissirðu að Valdi er búinn að kaupa miða í rútu til ykkar og mætir á svæðið næstu helgi... Passaðu nú kallinn minn vel og láttu hann ekki komast upp með neitt múður...
Bestu kveðjur frá Hvanneyri

#2
30. janúar 2010 klukkan 22:23
Æi... gleymdi að segja ... Squash er ÆÐI... Ég hreinlega elska þá íþrótt.. enda alin upp við það að pabbi spilaði Squash í Bretlandi og þegar heim var komið... Og hann varð einu sinni í 5. sæti á Íslandsmeistaramótinu.... Ég gæfi handlegginn fyrir Squash sal í Borgarnesið en mér finnst þetta gott parasport en við Valdi spiluðum svolítið úti í Svíþjóð þar til ég tognaði í afturendanum í einhverri góðri sveiflu...
Ég spilaði líka Squash í Gambíu þegar ég var þar... En það var loftkæling í salnum þannig að ég veit ekki hvort það var loftkælinginn eða Squash áhuginn sem var málið... En ég var að spila við Nígeríska lækna sem töldu að Squash og áfengi færu vel saman svo ég missti fljótt áhugann...

#3
30. janúar 2010 klukkan 22:27