fyrsta setningin komin í pælingabókina mína.....
fyrir 18. febrúar 1974
"Þú ert næm og skapandi í dag. Ímyndunaraflið er sterkt. Þetta er því dagur til að hugleiða, pæla í andlegum málum, fást við skapandi verkefni eða skemmta þér. Nú er einnig gott að hjálpa öðru fólki. Hjálpsemi stuðlar að góðvilja sem skilar sér aftur til þín, þótt síðar verði."
Fyndið, það var svolítið sem kom upp í hendurnar á mér í dag sem varð til þess að ég fór og keypti mér tóma línustrikaða bók með hörðum "front"....þessa bók kalla ég pælingabók. Datt svo í hug að kíkja á stjörnuspána mína og viti menn það er þarna ein setning sem passar og síðasta setningin passar alveg.
Það hefur verið í miklu að snúast í dag og mikið hugsað.
Byrjaði á að vakna með drengjunum uppúr fimm í morgun og keyrðum við á flugvöllinn en Stefán þurfti að vera mættur þar um kl 7, Þórður kom með vegna þess að Haukur var að vinna.
Þegar ég kom heim, eftir að hafa keyrt Þórði á leikskólann, fékk ég símhringingu og síðan fór af stað "pæling". Síðan tóku við ýmsar útréttingar, búðir og skutl hingað og þangað. Við Þórður enduðum í afmæliskaffi hjá Ragnheiði 12 ára skvísu núna seinnipartinn og komum svo heim og elduðum kvöldmat. Haukur kom heim um klukkan sjö í kvöld...jebb það snjóar, hann var semsagt ekkert búinn að koma heim úr snjómokstri síðan hann fór klukkan tvö í nótt!!!
Á morgun fer Þórður í afmæli.
Mataræðið í dag: Eftir bókinni, fyrir utan hollustupizzu í kvöld og súkkulaðiköku hjá Lydíu....en eins og Lydía sagði "það er föstudagur" 
vonandi áttu góða helgi mín kæra og vá hvað ég vona að þú hafir nú bara rétt fyrir þér áfram í sambandi við handboltaliðið okkar. Heia Island