fimmtudagur til frama (var það ekki?)
28. janúar 2010 klukkan 08:02
Ég held við vinnum Norðmenn í dag. Þetta verður æsispennandi leikur og við vinnum þá því við erum með mikið betra lið en þeir, það er nú bara þannig. Norðmenn eru mjög stressaðir yfir leiknum en ef þeir eiga að eiga séns í að komast áfram þá skilst mér að þeir þurfi að vinna með 4 marka mun og Króatar verða að vinna Dani.....þeir skelfa bókstaflega á beinunum
Vona reydnar að Króatar vinni Dani því mér finnst Danir hafa komist svolítið bakdyrameginn inn....en jæja ætla ekki að eyða meiri orðum í það.
Dagurinn er þéttskipaður en nú er ég á leið í fyrirlestur hjá honum Jon Frank sem er sá kennari sem hefur virkilega áhuga á og veit hvað er um að vera í skógræktarmálum á Íslandi, skemmtileg týpa, skemmtilega forvitinn og eins og M&M kúla í laginu!!!! Segi samt ekki að ég vilji borða hann
Eftir fyrirlestur og heimalestur á ég stefnumót við eldri soninn en við ætlum að skella okkur í ræktina, sækjum svo Þórð Loga og förum heim og horfum á leikinn.
Stefán Snær ætlar að sjá um kvöldmatinn í kvöld, mexikóskur matur verður í boði skilst mér.
Síðan í fyrramálið verðum við að taka daginn snemma og keyra uppá Gardemoen því hann er að fara til Danmerkur í helgarheimsókn til pabba síns og fjölskyldu.
Læt þetta duga í dag ÁFRAM ÍSLAND!!!
Maturinn í dag.
Mm: Kornfleks, léttmjólk, banani.
10-kaffi: epli.
Hm: Grænmeti og egg.
3-kaffi: Appelsína.
Km: Mexikómatur (hakk, grænmeti, salsa).
Vona reydnar að Króatar vinni Dani því mér finnst Danir hafa komist svolítið bakdyrameginn inn....en jæja ætla ekki að eyða meiri orðum í það.Dagurinn er þéttskipaður en nú er ég á leið í fyrirlestur hjá honum Jon Frank sem er sá kennari sem hefur virkilega áhuga á og veit hvað er um að vera í skógræktarmálum á Íslandi, skemmtileg týpa, skemmtilega forvitinn og eins og M&M kúla í laginu!!!! Segi samt ekki að ég vilji borða hann

kveðja mamma