Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

já einmitt það...

18. janúar 2010 klukkan 17:06
Jahérna hér!!
Þetta hefur gerst afar sjaldan, ég hef ekki bloggað í þrjá daga í röð!!
Ég hef einhvernvegin ekki fundið fyrir þörf til þess og þess vegna ekkert verið að rembast eins og rjúpan við staur.
Afmælisveislan gekk vonum framar.
Ég var búin að vera með í maganum yfir því að fá átta unglinga (níu með Stefáni) í pizzu, hugsaði með mér hvað ég væri nú búin að koma mér í. Reyndar hefur sú hugsun oft oft komið upp í kollinum á mér síðustu misserin en ætli þetta sé ekki einn liðurinn í þroskaferlinu...maður þarf alltaf að vera að ögra sjálfum sér. En hvað um það, afmælið gekk vel, ég bakaði fjórar pizzur, keypti sex gosflöskur og fullt af nammi. Til að gera langa sögu stutta þá var rúmlega ein pizza eftir, helmingurinn af gosinu og helmingurinn af namminu!!! Haukur fékk lánaðan litlan minibus og keyrði svo genginu í bíó og splæsti nasli og drykk á liðið.
Á leiðinni í bíóið (ca 10-15 mín keyrsla) voru græjurnar þandar og sungu drengirnir og klöppuðu en það var norsk tónlist, hljómsveitin DDE. Þeir voru ánægðir með myndina og því var það alsæll 14 ára unglingur sem kom heim um kvöldið. Hann fór svo með allan afmælispeninginn í Skistorsenter á laugardaginn og keypti sér draumagræjuna "ipod touch".
Restin af helginni fór svo að mestu í lestur, afslöppun, þrif, eldamennsku og skíðaæfingar en við Þórður erum að feta okkur áfram á skíðabrautunum, auk þess datt ég ofan í "yndisbókalestur" og síðan kláraði ég "hauskúpupeysuna" Þórður er alsæll með hana og var mjög montið að fara í henni í leikskólann í morgun.
Það er mikil viðvera í skólanum þessa dagana (s.k. janúarblokk) en ég fer í próf eftir viku og eftir það byrjar vorönnin.
Við fórum í smá felövelse í dag í janúarkúrsinum, skoðuðum veðurstöðina hér í Ås og fórum svo út í skóg, þar sem við kynntum okkur trjáklifur og hvernig sýnatöku er háttað í skógi þ.e. þegar tekin eru sýni, ofarlega af trjám, þessi voru um 23 m há og því ansi mikið klifur og notaður var samskonar búnaður og notaður er við fjallaklifur. Síðan var kveikt bál og við borðuðum "lunjs" Wink
Eftir að hafa sótt Þórð á leikskólann fórum við á skíði og Amý og Björn komu með, það var mjög gaman og mikill styrkur fyrir þau litlu vinina að vera saman í þessu.
Ég hef ekkert verið að standa mig í hlaupum eða kraftgönguferðum, hef bara ekki haft tíma....en það lagast. Ég fjárfesti í hlaupagormum um helgina sem eru einskonar mannbroddar og gera mann því öruggari á hlaupum/göngu í hálkunni. Bíð bara eftir að Bríet komi heim fra Bahamas en við höfum stutt hvor aðra í þessum hlaupum.....Smile
Læt þetta duga í bili, fiskurinn er "reddí" Cool
A ha, manneskja sem getur tekið sýni ofarlega úr trjám. Það getur sko komið sér vel.
Ég hef einmitt séð myndir af svoleiðis sveppafræðingum með bönd og Tarsanfílingu að elta slímsveppi upp um hæstu tré. Svo voru einhverjir sem voru með með fastan reit og byggingarkrana í honum.
Kveðjur, Gyða
#1
19. janúar 2010 klukkan 08:21
æ gaman að afmælispartýið gekk vel, en auðvitað rúllar þú svona löguðu upp eins og öðru sem þú tekur þér fyrir hendur.
gangi ykkur vel á skíðunum
#2
19. janúar 2010 klukkan 14:29

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.