Stefán Snær......
14. janúar 2010 klukkan 13:48
.......... á afmæli í dag, 14 ára!!!!
Vá hvað tíminn flýgur - finnst svo stutt síðan hann fæddist og tók fyrstu skrefin. Það er ekki til betri mælikvarði á hvað tímanum líður en aldur barnanna okkar.
Við gáfum honum pening og mér skilst hann ætli að safna sér og kaupa rafmagnstrommusett eða ipod touch.
Hann er búinn að bjóða nokkrum vinum sínum hingað heim í pizzu eftir skóla á morgun og svo verða drengirnir ferjaðir til Ski þar sem farið verður í bíó. Búin að kaupa miða á Sherlock Holmes...í númeruð sæti (það er sko svoleiðis hér og svo kaupir maður miðana á netinu)
Við hættum semsagt við sundferð því það er mun lengri akstur þangað.
Ferming: Hef mikið verið spurð út í fermingu Stefáns en það er ákveðið að hann mun fylgja sínum bekkjarfélögum í fermingarfræðslu næsta vetur en hér fermast börnin ári seinna en heima. Þannig að við stefnum að sumarfermingu í Skagafirði 2011 en þá verðum við vonandi að flytja heim á eyjuna fögru. Hljótum að geta fengið einhvern prest til að ferma drenginn, nema hann fermist hér þó veislan verði heima - sjáum til, nægur tími til stefnu.
Stefán og tveir vinir hans eru búnir að stofna hljómsveit, þeir fá að æfa í skólanum á miðvikudögum og það sem er á stefnuskránni er að æfa Nirvana lög.
Það gengur ágætlega hjá honum í skólanum en hann stefnir á að bæta sig og félagslegi hlutinn er í mjög góðum málum og það er fyrir öllu.
Í dag stóð hins vegar til að baka köku og hafa það náðugt hér heima en auðvitað er eldavélin og bakarofninn að stríða okkur, slökkti á sér áðan
Vona að hægt sé að laga það á einfaldan hátt, er ekki alveg til í að leita að nýrri eldavél núna
ofninn þarf að vera í góðu lagi á morgun svo ég geti bakað allar pizzurnar!!!!
Annars eru aldeilis góðar fréttir, fjölskyldan mín (mamma, pabbi, systkini, makar og börn
) koma í sumar. Þau koma 6. júlí og verða til 15. nema mamma og pabbi þau verða viku lengur.
Það er heldur betur farið að þéttast á dagatalinu okkar og stefnir í mikinn gestagang. Ása Dóra kemur í lok júní og verður í viku, Halla kemur í mars og svo eru margir aðrir að spá og spegúlera en ekkert fast í hendi enn.
Vá hvað tíminn flýgur - finnst svo stutt síðan hann fæddist og tók fyrstu skrefin. Það er ekki til betri mælikvarði á hvað tímanum líður en aldur barnanna okkar.
Við gáfum honum pening og mér skilst hann ætli að safna sér og kaupa rafmagnstrommusett eða ipod touch.
Hann er búinn að bjóða nokkrum vinum sínum hingað heim í pizzu eftir skóla á morgun og svo verða drengirnir ferjaðir til Ski þar sem farið verður í bíó. Búin að kaupa miða á Sherlock Holmes...í númeruð sæti (það er sko svoleiðis hér og svo kaupir maður miðana á netinu)

Við hættum semsagt við sundferð því það er mun lengri akstur þangað.
Ferming: Hef mikið verið spurð út í fermingu Stefáns en það er ákveðið að hann mun fylgja sínum bekkjarfélögum í fermingarfræðslu næsta vetur en hér fermast börnin ári seinna en heima. Þannig að við stefnum að sumarfermingu í Skagafirði 2011 en þá verðum við vonandi að flytja heim á eyjuna fögru. Hljótum að geta fengið einhvern prest til að ferma drenginn, nema hann fermist hér þó veislan verði heima - sjáum til, nægur tími til stefnu.
Stefán og tveir vinir hans eru búnir að stofna hljómsveit, þeir fá að æfa í skólanum á miðvikudögum og það sem er á stefnuskránni er að æfa Nirvana lög.
Það gengur ágætlega hjá honum í skólanum en hann stefnir á að bæta sig og félagslegi hlutinn er í mjög góðum málum og það er fyrir öllu.
Í dag stóð hins vegar til að baka köku og hafa það náðugt hér heima en auðvitað er eldavélin og bakarofninn að stríða okkur, slökkti á sér áðan
Vona að hægt sé að laga það á einfaldan hátt, er ekki alveg til í að leita að nýrri eldavél núna
ofninn þarf að vera í góðu lagi á morgun svo ég geti bakað allar pizzurnar!!!!Annars eru aldeilis góðar fréttir, fjölskyldan mín (mamma, pabbi, systkini, makar og börn
) koma í sumar. Þau koma 6. júlí og verða til 15. nema mamma og pabbi þau verða viku lengur. Það er heldur betur farið að þéttast á dagatalinu okkar og stefnir í mikinn gestagang. Ása Dóra kemur í lok júní og verður í viku, Halla kemur í mars og svo eru margir aðrir að spá og spegúlera en ekkert fast í hendi enn.
Björk
Við Stefán þekkjum bras með ofninn á heimlinu eftir súkkulaðikökuna okkar góðu, en var þetta ekki bara gott, svona hitaþurruð bránís. Vertu bara búin að forbaka botnana, þá er alltaf hægt að redda restinni. Hamingjuóskir til ykkar og enn einn koss til Stefáns, Þórður fær að sjálfsögðu stórt knús frá Heklu sinni.
#1
14. janúar 2010 klukkan 13:55
Til hamiongju með soninn...og vonandi gengur betur með baksturinn !!
#2
14. janúar 2010 klukkan 14:25
Steinunn
Til hamingju með afmælisbarnið,já það er nokkuð ljóst að tíminn er fljótur að líða kominn með ungling!!En það er nú munur að við erum nú alltaf svo ungar allavega í anda he he.
Gangi þér vel í bakstrinum Sigga mín og við sendum knús á línuna hérna úr Skagafirðinum.
Kveðja Steinunn

#3
14. janúar 2010 klukkan 18:30