Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Blessuð sértu sveitin mín....

11. janúar 2010 klukkan 07:28
.....þessi bloggfærsla á nú ekkert sérstaklega að fjalla um sveitina mína í hinum fagra Skagafirði. Hún á nú meira að fjalla um þorramat Cool Óneitanlega fléttast þá mín heimasveit inn í þá umræðu því það er að sanna sig hvað eftir annað hvað afturhaldssemi/íhaldssemi getur borgað sig. Það mundi seint teljast afturhaldssemi/íhaldssemi að halda þorrablót heldur er það meira framkvæmdin sem ég vil ræða. Málið er að í minni heimasveit og ég held á flestum þorrablótum í Skagafirði mætir fólk með matinn með sér. Það eiga allir trog og útbúa matinn í trogið. Þetta er ákaflega hentugt því ekki þarf að eyða plássi í félagsheimilinu í hlaðborð sem oft þegar litið er yfir minna lítið á þorrann (pottréttir eru sko ekki þorramatur). Auk þess er það afar hentugt að geta gætt sér á þorramat allt kvöldið á meðan skemmtiatriðin "rúlla". Svo ég tali nú ekki um að fá sér nætursnarl þegar heim er komið.
Núna er svo komið að við íslendingarnir hér að Åsi ætlum að reyna að halda lítið þorrablót. Við höfum verið að sanka að okkur allskyns varningi því tengdu og ef við leggjum saman þá leynist hér í frystum harðfiskur, slátur og hangikjöt, okkur vantar því sviðasultu (hentugra að flytja sviðin í sultu...), súrmat og hákarl. Á vissum svæðum hér í Noregi er hefð fyrir að borða reykt svið og við gætum kannski orðið okkur út um svoleiðis mat. Við getum keypt súpukjöt sem við gætum pæklað sjálf (en okkur vantar uppskrift...einhver??) Við kunnum að gera rófustöppu og kartöflustöppu og hér getum við keypt ekta smjör. Flatkökurnar gætum við búið til, svo og rúgbrauð og steikt brauð...allar uppskriftir vel þegnar.

Í framhaldi að þessu þá er ég að komast að því hvað það er nú gott að þurfa að hafa fyrir þessu, maður getur gert ýmislegt sjálfur og menningarverðmæti eins og að kunna að gera þorramat, baka og steikja brauð er mikilvægt að halda í. Við þurfum að hafa fyrir því að halda í okkar menningu - jú auðvitað eru alltaf einhverjir sem spá í þetta en afar fáir sem gera þorrabakkana sína frá A til Ö.

Læt þetta duga að sinni en hér á eitthvað að slakna á frostinu, það fer niður í -10°C um miðja vikuna.....Smile
gott blogg
Þorramatur er góður og góð hefð að halda þessu við. Ég er ekki mikil hefðamanneskja og venjulega er ég svo leiðinleg að ef það er hægt að kalla eitthvað hef sem ég hef fyrir stafni þá vil ég hætta því og gera eitthvað annað.
En Þorrinn eru auðvitað á dagatalinu okkar og það er nú allt í lagi að borða þá Þorramat, það er aðeins öðruvísi hefð en bara að heimsækja alltaf ömmu á sunnudögum (eins og það sé bara bannað að heimsækja á fimmtudögum eða eitthvað) eða fara alltaf í útilegu með bróður sínum fyrstu helgina í júlí, ég meina kommon svona "hefðir" verða bara kvaðir eftir smá stund.
Jæja missti mig aðeins þarna um hefðir úsp, sorry
En í sambandi við þorramatinn, ég salta hrossakjöt, það er örugglega gert svipað og að salta kindakjöt!! ég geri ekki flatbrauð, en ég er ekkert hrædd við rúgbrauðið, ég geri sviðasultu úr öllum sviðunum mínum á haustin, þau komast betur fyrir í kistunni þannig hehe. ég elska hákarl en ég verka hann ekki sjálf... treysti því að aðrir sjái u m það og andast fyrir aldur fram ef það myndi detta uppfyrir!!! ég verð að játa á mig stærstu syndina....... ég borða ekki súrmat!!! ég veit ég er dasi, en sorry við eigum fristikistu, hún geymir matinn einfaldlega betur en súrinn að mínu mati!!! En þetta verður til þess að óskar kemur örugglega ekki til með að borða súrmat því hann fær hann aldrei litla greyið, ég er að klúðra uppeldinu !!!
Þorrablót í brún 23.janúar, á ekki að mæta bara óvænt og sjá svipinn á liðinu hehe
Annars fór ég á skrítnasta þorrablót ævi minnar í Osló 2007 hjá Íslendingafélaginu. jamm meira en lítið skrítið það, en hljómsveitin var góð
knús á ykkur kæru vinir (nú er kommentið orðið svo langt að enginn nema þú nennir að lesa það híhíhíhíhí)
#1
11. janúar 2010 klukkan 09:02
Rúgbrauð: :)

2 bollar hveiti
2 bollar heilhveiti
2 bollar rúgmjöl
350 g sýróp
1 ltr súrmjólk
2 tsk salt
2 tsk matarsódi
2 tsk lyftiduft
Öllu blandað saman, bakað við 150°C í 4 klst, þá slökkt á ofninum og látið standa í ofninum í 30 mínútur í viðbót.

(tvöföld uppskrift í stóran steikarpott, líka hægt að nota mjólkurfernur en þá setja bara deig í rúmlega hálfa fernu eða svo).

Njótið vel og gangi ykkur vel við undirbúninginn :)

Kv. Magga
#2
11. janúar 2010 klukkan 09:17
 
Árni Gísli litli bróðir
Ég myndi mjög líklega segja þér einhverja uppskrift ef ég myndi bara kunna einhverja... :)
#3
11. janúar 2010 klukkan 14:29
Það á aldeilis að leggja á sig fyrir Þorrann hehe ég er nú svoddan gikkur að mér finnst súrmatur ekki góður en get borðað hitt. En vonandi gengur þetta vel hjá ykkur. Gott að frostið er á niðurleið...þá eru engar afsakanir fyrir hreyfingarleysi :o)
#4
12. janúar 2010 klukkan 12:40

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.