Já, frábær þessi samvinna! Nauðsynlegt þegar einn fjölskyldumeðlimur (og þá kannski aðallega húsmóðirin) er í námi eða önnum kafin í vinnu.
Í sambandi við ryksugunina, þá væri nú bara fyndið ef þeir myndu taka sig til og ryksuga báðir sama daginn! :D
Knús í kotið!
Samvinna
07. janúar 2010 klukkan 17:37
Haukur kom með snilldartillögu um daginn. Hún var sú að hver og einn á heimilinu verði að elda eina máltíð í viku og vaska upp og ganga frá í eldhúsi á eftir
Held hann hafi verið að gera sér grein fyrir því að nú sé álagið á mér að aukast og því verði þeir að taka meiri þátt í heimilishaldinu.
Þeir byrjuðu í þessari viku. Þórður Logi eldaði á þriðjudagskvöldið (ég hjálpaði honum), hann tók til pott og náði í grjón upp í skáp og mjólk í ísskápinn. Hann lagði síðan á borðið og eftir að ég hafði sett grjónin upp og hann búinn að hræra í þá fór hann að leika við Amý vinkonu sína og "gleymdi" að hann var að elda.....auðvitað...bjargaði mamman því
Í gærkvöldi eldaði Stefán Snær pítu - brúnaði hakk, brytjaði grænmeti, lagði á borð og vaskaði upp
Haukur eldaði í kvöld bjúgu og kartöflumús. Bjúgun og jóla-dalabrie færði Eyjólfur okkur þegar hann kom "heim" úr jólafríi. Ég sé fast um föstudagspizzuna og svo "fæ" ég að ráða hvað verður eldað hina dagana.
Auk þess að þeir hafi tekið á sig aukna ábyrgð í eldhúsinu þá verður hver og einn að ryksuga einu sinni í viku....það var reyndar ekki ákveðið hvaða dagar það væru þannig að þeir hafa ekkert ryksugað enn.
Skólinn er byrjaður á fullu hjá mér, fyrirlestrar og GIS yfirferð í tölvusal. Kennarinn mun leggja fram alls tuttugu verkefni en maður þarf að standast a.m.k. 15 þeirra til að hafa próftökurétt. Við höfum 2 sólarhringa til að leysa hvert (eftir að hann hefur lagt þau fyrir). Hann er nú þegar búin að leggja fram nokkur þeirra og hefur gengið vel að vinna þau. Í lok áfangans verður 3 klst. próf eða þann 25. janúar.
Hér er mjög kalt þessa dagana eins og ég hef minnst á undanfarið en það hefur ekkert bætt í snjóinn. Haukur hefur hins vegar verið kallaður í söltun og sópun í Osló með ca 4 daga millibili.
Seinnipartinn á morgun er jólaball á leikskólanum og síðan er Þórði boðið í afmæli á laugardaginn.
Stefán Snær á afmæli í næstu viku og erum við með þá hugmynd að bjóða nokkrum vinum hans í sund í Askim en þeir eru með ágætis afmælistilboð þar sund+matur
Íbúðin hér býður ekki alveg upp á neitt "geim" og þetta er svona það sem Stefáni langar helst til að gera í tilefni dagsins.
Alltaf nóg að gera hér
Held hann hafi verið að gera sér grein fyrir því að nú sé álagið á mér að aukast og því verði þeir að taka meiri þátt í heimilishaldinu.Þeir byrjuðu í þessari viku. Þórður Logi eldaði á þriðjudagskvöldið (ég hjálpaði honum), hann tók til pott og náði í grjón upp í skáp og mjólk í ísskápinn. Hann lagði síðan á borðið og eftir að ég hafði sett grjónin upp og hann búinn að hræra í þá fór hann að leika við Amý vinkonu sína og "gleymdi" að hann var að elda.....auðvitað...bjargaði mamman því
Í gærkvöldi eldaði Stefán Snær pítu - brúnaði hakk, brytjaði grænmeti, lagði á borð og vaskaði upp
Haukur eldaði í kvöld bjúgu og kartöflumús. Bjúgun og jóla-dalabrie færði Eyjólfur okkur þegar hann kom "heim" úr jólafríi. Ég sé fast um föstudagspizzuna og svo "fæ" ég að ráða hvað verður eldað hina dagana.Auk þess að þeir hafi tekið á sig aukna ábyrgð í eldhúsinu þá verður hver og einn að ryksuga einu sinni í viku....það var reyndar ekki ákveðið hvaða dagar það væru þannig að þeir hafa ekkert ryksugað enn.
Skólinn er byrjaður á fullu hjá mér, fyrirlestrar og GIS yfirferð í tölvusal. Kennarinn mun leggja fram alls tuttugu verkefni en maður þarf að standast a.m.k. 15 þeirra til að hafa próftökurétt. Við höfum 2 sólarhringa til að leysa hvert (eftir að hann hefur lagt þau fyrir). Hann er nú þegar búin að leggja fram nokkur þeirra og hefur gengið vel að vinna þau. Í lok áfangans verður 3 klst. próf eða þann 25. janúar.
Hér er mjög kalt þessa dagana eins og ég hef minnst á undanfarið en það hefur ekkert bætt í snjóinn. Haukur hefur hins vegar verið kallaður í söltun og sópun í Osló með ca 4 daga millibili.
Seinnipartinn á morgun er jólaball á leikskólanum og síðan er Þórði boðið í afmæli á laugardaginn.
Stefán Snær á afmæli í næstu viku og erum við með þá hugmynd að bjóða nokkrum vinum hans í sund í Askim en þeir eru með ágætis afmælistilboð þar sund+matur
Íbúðin hér býður ekki alveg upp á neitt "geim" og þetta er svona það sem Stefáni langar helst til að gera í tilefni dagsins.Alltaf nóg að gera hér

Þórhildur
Tek ofan fyrir þessum herramönnum sem þú býrð með. :-) Mætti eflaust fleiri taka sér þá til fyrir myndar.
#3
07. janúar 2010 klukkan 20:25
Sissaa
Magnað, svona á að gera þetta! ;) En gleðilegt árið öll þarna í Noregi, vonandi að þið hafið átt notarlega jólahátíð og skemmtileg áramót, það áttum við hérna á Dalvíkinni. Ég er nýlega búin að blogga en á eftir að setja inn myndir, fer alveg að fara í það og blogga aftur, endilega kíktu á það.
Gangi þér súper vel í öllum þessum verkefnum, skólinn fer alveg að fara í gang hjá mér, þarf að fara byrja á lokaverkefninu mínu og kíkja á hin fögin svo að ég geti útskrifast í vor! ;);)
Knús í þitt kot Sigga mín,
Sissa & co! ;)

#4
07. janúar 2010 klukkan 21:56
vá það er nóg að gera, gangi þér vel í öllum þessum verkefnum og reyndu nú að hafa líka tíma fyrir hreyfingu :o)
#5
08. janúar 2010 klukkan 08:56
samvinna er nauðsynleg og frábært að allir fái að taka þátt það er líka svo mikilvægt.
en mér líst vel á afmælisferð í Askim, snilldar staður þar!!
gangi ykkur annars bara vel
en mér líst vel á afmælisferð í Askim, snilldar staður þar!!
gangi ykkur annars bara vel
#6
08. janúar 2010 klukkan 12:55
Samvinna klikkar aldrei og fleira henni tengt :-) ... vona að bjúgun hafi bragðast vel.
#7
08. janúar 2010 klukkan 15:17
kv
HB.